157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

verndartollar ESB á kísilmálm.

[13:47]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla að fá að ítreka það hér, ég hóf þessa fundarstjórn hér rétt áðan og það er einmitt vegna þess að við eigum öll hér inni hagsmuna að gæta sem er atvinnulíf á Íslandi. Við skulum ekki gera þetta í einhverjum pólitískum skotgröfum vegna þess að það er sameiginlegt markmið hvers og eins hér inni að gæta hagsmuna Íslands. Það er enginn að efast um það hér að hæstv. utanríkisráðherra hafi ekki verið að gæta hagsmuna Íslands. Það breytir því ekki að við erum aðilar að innri markaðnum. Við erum aðilar að EES-samningnum og höfum gert allt sem í okkar valdi hefur staðið til að standa við okkar skuldbindingar gagnvart samningnum. Þess vegna er þessi niðurstaða sem varð í Brussel í morgun mikil vonbrigði. Við eigum nefnilega ekki að klemmast á milli stórvelda þegar við erum þátttakendur á innri markaðnum eins og við erum búin að vera í rúm 30 ár. (Forseti hringir.) Ég ítreka að við förum í þessa umræðu af yfirvegun en ég ætla jafnframt að ítreka það að forsætisráðherra (Forseti hringir.) kalli saman alla formenn flokka og komi hér og upplýsi þingið um stöðu mála.