157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

verndartollar ESB á kísilmálm.

[13:50]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Þetta er alvarleg staða fyrir iðnað á Íslandi. Ég kalla eftir því sömuleiðis, til viðbótar við þá orðræðu sem hefur átt sér stað í dag, að við metum aðeins þetta risastóra mál fyrir framtíð íslensks iðnaðar á Íslandi. Hvernig mun sú framtíð teiknast upp? Ég vil taka undir með hv. þingmanni og formanni Sjálfstæðisflokksins sem talar um að við eigum að standa vörð um EES-samninginn í þessu samhengi. Við eigum ekki bara að kalla saman formenn flokka, við eigum ekki bara að tala við iðnaðinn í landinu. Við eigum líka að hafa sérstaka umræðu um stöðu EES-samningsins í samhengi við okkar viðskiptahagsmuni og okkar iðnað í landinu hér í þingsal. Ég tel mikilvægt að sú umræða eigi sér stað með öllum þingheimi hið fyrsta.