verndartollar ESB á kísilmálm.
Virðulegur forseti. Ég tel ekki óvitlaust, til að átta okkur á því hvers konar vatnaskil hafi orðið hér, að vísa til orða Álfheiðar Ágústsdóttur, forstjóra Elkem á Íslandi, sem segir, með leyfi forseta:
„Við þurfum bara að fylgjast núna með þessu í þessum nýja veruleika og reyna að átta okkur á hvernig við vinnum með þá stöðu. En auðvitað eru það alveg hryllileg vonbrigði að EES-löndin séu núna fyrir utan og ekki lengur aðilar að innri markaði.“
Slík eru vatnaskilin og hér eru þingmenn þegar þeir bregðast hinir verstu við, eðlilega, sakaðir um að grafa undan EES-samningnum. En hver er að grafa undan EES-samningnum annar en Evrópusambandið? Hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir talar um að nú hefjist nýir tímar í íslenskri hagsmunagæslu. Hvernig verður sú hagsmunagæsla á þessum nýju tímum? Verður hún falin í því að auka enn á undirgefni okkar með því að ráðast beint í bókun 35 eins og manni heyrist hv. þm. Dagur B. Eggertsson leggja til? Það verður ekki leiðin af hálfu Miðflokksins, sannarlega ekki.