verndartollar ESB á kísilmálm.
Frú forseti. Í ljósi orða hv. þm. Dags B. Eggertssonar finn ég mig knúinn, og reyndar var undir það tekið að nokkru leyti af hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur, að benda á það að ef einstaka þingmenn hér inni viðra áhyggjur sínar af því hvernig EES-samningurinn er að þróast, sem hefur skipt okkur miklu máli í gegnum tíðina, að hann sé kannski að verða dálítið einhliða, þá eru það ekki þeir sem eru að grafa undan samningnum. Það er Evrópusambandið með þessari niðurstöðu sem er að grafa undan EES-samningnum, ekki þingmenn sem eru að nýta hér málfrelsi sitt til að viðra áhyggjur. Ég tek undir orð hv. þm. Snorra Mássonar að það er ekki rétta leiðin að auka núna á undirgefnina. Nú þarf að sýna það sem þessi þjóð hefur áður gert í gegnum tíðina, festu, númer eitt, tvö og þrjú. Ég legg til að við ættum bara að íhuga það hér í þessum sal hvort við eigum nokkuð að vera að innleiða hér fleiri bókanir fyrr en við náum frekari árangri á þessu sviði.