Störf þingsins.
Frú forseti. Það kemur væntanlega ekki á óvart að ég mun ræða hér ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að veita Íslandi og Noregi ekki undanþágu frá verndaraðgerðum vegna kísiljárns. Það hefur verið mikið rætt í dag og margt gott verið sagt. Það er auðvitað okkur öllum gríðarleg vonbrigði að þetta skuli vera niðurstaðan. Það má meira að segja nota sterkari orð um þetta mál en það. Það má segja að þessi niðurstaða sé hreint áfall fyrir íslenskt samfélag og fyrir atvinnulífið.
Vonbrigðin eru ekki síst fallin í þeirri staðreynd að þrátt fyrir að íslensk fyrirtæki taki á sig skuldbindingar og kvaðir og greiði jafnvel milljarða fyrir aðgang að innri markaði Evrópusambandsins þá bera þau í raun ekkert úr býtum þegar á reynir. EES-samningurinn er okkur Íslendingum mjög mikilvægur en ef það á að vera raunin að við eigum ekki aðgang að innri markaðnum nema þegar Evrópusambandinu þóknast þá hlýtur það að vera tilefni til að staldra við og velta fyrir okkur hvort samningurinn sé ekki það haldreipi sem við höfum hingað til talið. Við hljótum að velta fyrir okkur: Af hverju vorum við að innleiða allt þetta regluverk? Er tilefni til að kalla eftir frekari skoðun á ákvæðum EES-samningsins í þessu ljósi? Er sú staða e.t.v. uppi, eins og formaður Sjálfstæðisflokksins Guðrún Hafsteinsdóttir lýsti hér fyrr í dag, að við séum ekki hluti af innri markaðnum eins og samningurinn á að tryggja, heldur sé okkur ýtt út fyrir tollmúrinn þegar hentisemi og hagsmunir ESB-ríkja rekast á okkar eigin hagsmuni? Varðandi hagsmunagæslu þá langar mig að segja að við í stjórnarandstöðu megum ekki vera of gagnrýnin. Ég hef t.d. heyrt í Elkem á Grundartanga og þau hafa verið hæstánægð með þá vörslu sem hefur verið höfð uppi hvað þeirra hagsmuni varðar. Við eigum að vera sanngjörn með að það hefur verið haldið ágætlega á því máli hingað til. (Forseti hringir.)
Ég vil líka benda á annað. Við verðum að sameinast um það að halda áfram að gæta hagsmuna og auðvitað leita eins langt (Forseti hringir.) og við mögulega getum með að fá þessari ákvörðun hnekkt. Við gerum það betur saman heldur en í sundur. Ég skora á okkur að vera alla vega á þeim hluta vagnsins. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)