157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[15:28]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta allsh.- og menntmn. (Sigurður Örn Hilmarsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans andsvar. Ég árétta að ég hef enn þessar áhyggjur sem birtast í umsögnum og frá fjölda umsagnaraðila, til að mynda frá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra þar sem er verið að ýta á eftir þessu; að staðsetning aðseturs sýslumanns, yfirstjórnar embættisins, verði einmitt bundin í lög og að hluta til auðvitað til að gera það svolítið erfiðara að hrófla við þessu. Í því felst ákveðið aðhald og það er líka þessi gagnrýni sem ég hef haft á frumvarpið hingað til. Það er að mínu viti helst til of hlutlaust; bæði hvað varðar þessa þætti sem ég hef nú rætt en líka aðra þætti er varða hæfisskilyrði sýslumannsins sjálfs. Ég verð að segja að það er svolítið erfitt að ræða um þessi mál þegar það á í raun og veru eftir að útfæra hinn helminginn, sem er þessi bandormur sem kemur síðan um hvernig eigi að sinna þessum verkefnum, hverjir eigi að gera það o.s.frv. Það væri kannski áhugavert að heyra aðeins meira frá hv. framsögumanni (Forseti hringir.) um akkúrat þetta, hvenær þessi bandormur kæmi fram og með hvaða hætti hann gæti verið.