157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[15:33]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Grímur Grímsson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir andsvarið. Ég hygg að fyrirspurnir hans, sem varða annars vegar hagræðingu og hins vegar byggðasjónarmið, séu einmitt það sem er að vegast á í þessu sambandi. Það er yfirlýst markmið frumvarpsins að gæta að byggðasjónarmiðum og þess vegna er sú hagræðing sem fæst út úr sameiningu notuð til þess að bæta þjónustu sýslumanns við íbúa landsins og eftir atvikum til þess að bæta við störfum. Það er markmið frumvarpsins að þessi störf verði sérstaklega störf sem skiptir ekki máli hvar eru unnin á landinu, að það séu störf sem bætist við á landsbyggðinni. Um það snýst það efnisatriði frumvarpsins að frumvarpið feli í sér eflingu byggðasjónarmiða. Að öðru leyti kom það fram hjá gestum ráðuneytisins, sem komu fyrir nefndina, að hagræðingunni væri ekki ætlað að skila tekjum í ríkissjóð heldur væri henni ætlað að auka starfsemi sýslumanns að því marki að bæta þjónustu við borgara landsins.