sýslumaður.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirferð yfir álit meiri hlutans. Það sem hefur verið umhugsunarefni hjá okkur í Framsókn er á hvaða vegferð ríkisstjórnin er. Til hvers er þessi vegferð farin? Lengi vel framan af virtist vera fjallað um það að þetta væri gert í hagræðingarskyni. Nú staðfesti hv. þingmaður það hér áðan að það væri ekki hagræðing sem væri ástæðan fyrir þessu. Við vitum líka að þegar við förum í sameiningar stofnana leggst þar viðbótarkostnaður á, oft er talað um 100 milljónir á fyrsta ári. Það á ekki til að setja viðbótarpening inn þannig að það er væntanlega hagræðingin sem á að skila því. Svo á hagræðingin að skila sér einhvern veginn til að standast það markmið að hér sé verið að efla byggðastefnu, markmiðum sem stefnt var að í byggðaáætlun; að efla og standa vörð um grunnþjónustu hins opinbera.
Þess vegna er spurning mín þessi: Er það mat hv. þingmanns, meiri hlutans, ríkisstjórnarinnar og væntanlega ráðherrans, að besta markmið til að efla grunnþjónustu úti á landi sé að miðstýra henni frá einum stað? Ef það er markmiðið, er það þá meining ríkisstjórnarinnar að færa allar aðrar stofnanir sem eru með svona þjónustu á mismunandi stöðum, til að mynda lögregluembættin sem ég veit að hv. þingmaður þekkir? Er það markmið þessarar ríkisstjórnar? Er það mat hv. þingmanns að það sé skynsamlegast að hafa eitt lögregluembætti í landinu, eitt sýslumannsembætti og einn skatt og toll o.s.frv.? Er það besta leiðin til að efla grunnþjónustu hringinn í kringum landið?