157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[15:42]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Markmiðið er ekki endilega að gera allt miðlægt, segir hv. þingmaður. Ókei, gott og vel. Hagræðing getur falist í fleiri hlutum heldur en bara fjárhagslegum, ég er sammála því. Hvernig er staðan núna? Hvert er tilefni til að draga alla sýslumenn saman í einn þátt? Er það vegna þess að þjónustan er vond? Er það vegna þess að traust á þjónustuna meðal landsmanna er dapurt?

Á stóra sýslumannsdeginum sem var haldinn bara fyrir tæpum mánuði síðan, 24. október, var kynnt niðurstaða þjónustukönnunar þar sem um 67% almennings eru ánægð með þjónustu sýslumanna sem er hæsta hlutfall frá upphafi mælinga. 71% höfðu traust á sýslumannsembættunum, sem þýðir að sýslumannsembættin eru komin í efsta lag með Landhelgisgæslunni, Háskóla Íslands og embætti forseta Íslands. Það er alla vega talsvert verkefni fyrir nýja ríkisstjórn, og nýtt verkefni, að bæta traust og bæta ánægju fólks með þjónustuna. (Forseti hringir.) Ef það var markmiðið þá veit ég ekki hvaða önnur embætti liggja undir á næstu vikum, misserum og árum.