157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[15:44]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Eins og fram kom hjá forseta fer ég hér með minnihlutaálit Ingibjargar Isaksen sem er fulltrúi okkar í Framsókn í allsherjar- og menntamálanefnd, sat reyndar einn fund, síðasta fundinn áður en málið var tekið út, þar sem Persónuvernd mætti á fundinn. En svo ég nefni svona aðalpunktana úr minnihlutaálitinu og bæti síðan inn kannski einhverjum nokkrum punktum sem mig langar að koma fram við þessa umræðu, þá er með þessu frumvarpi auðvitað boðuð sameining sýslumannsembætta sem árið 2015 voru 24 og var þá fækkað niður í níu. Hugmyndafræðin var átta, það var bætt við sýslumannsembætti í Vestmannaeyjum vegna þess að það var talið mikilvægt þá vegna þess að eyjan væri einangruð að það væri sýslumaður með vald á staðnum. Þess vegna var bætt við, níu, annars var hugmyndin átta, þessir þjónustukjarnar landsins hringinn í kringum landið. Núna ákveður þessi ríkisstjórn — og það hafa reyndar verið aðrir einstaklingar í öðrum flokkum sem hafa verið með slíkar hugmyndir líka áður en ekki við í Framsókn. Við teljum mikilvægt að það séu þjónustukjarnar þar sem ríkið veiti þjónustu úti um land.

Eins og ég nefndi í andsvari rétt áðan er staðan sú í dag að 67% þjóðarinnar eru ánægð með þjónustu sýslumanna eins og hún er og 71% bera traust til hennar. Engu að síður er það ríkisstjórnarmarkmiðið að leggja niður þessi átta embætti sem njóta trausts og eru nokkuð vel þokkuð af þjónustu og markmið að efla þjónustu við fólk hringinn í kringum landið og ná fram markmiðum byggðaáætlunar meira að segja. Fjárhagslega hagræðingin á að skila sér inn í þá vinnu.

Markmið þessarar skipulagsbreytingar eins og þau birtast í frumvarpinu eru almenns eðlis og áhrif innleiðingarinnar óljós, sem er auðvitað augljóst þegar það er ekki lögfest ákvæði inni í þessum hlutum og þegar þau eru ekki lögfest þá er það undir Pétri og Páli og Gunnu og Siggu, framtíðarfólki í mismunandi stöðum, algerlega komið hvernig þróunin verður. Ef við lítum til baka til fortíðarinnar og reynslunnar af til að mynda sameiningu Skattsins þá tókst hún vel hagræðingarlega séð og stafræn þróun gekk vel en afleiðingin varð sú að fólk í útibúunum hringinn í kringum landið — þjónustan við landsmenn á staðnum dróst saman, hún hvarf, varð öll miðlæg, þannig að það er alveg eðlilegt að það sé tekið hér upp, vítin eru til að varast þau.

Það er alveg veruleg óvissa um hvernig markmiðum skuli náð. Markmið um bætta þjónustu við almenning hefur helst verið rökstutt með vísan til sameiningarinnar sjálfrar og áframhaldandi innleiðingar stafrænnar þjónustu sem hefur reyndar gengið nokkuð vel, samanber þessa þjónustukönnun hjá embættunum. Þá er líka vísað til ókosta sem talið er að fylgi núverandi skipulagi. Markmið um hagræðingu og skilvirkni byggist nær eingöngu á boðuðum breytingum í yfirstjórn og þjónustu en hvergi kemur fram nákvæm skýring á því hvernig þeirri hagræðingu á að ná fram, svo sem með tilliti til tíma og umfangs. Einnig eru kynntar væntingar um aukna sérhæfingu verkefna sem ætlað er að leiða til hagræðingar. Engin áætlun, tímamörk eða nánari lýsing er hins vegar kynnt þrátt fyrir sérstakt tilefni en sambærileg markmið Alþingis við fækkun sýslumannsembættanna árið 2015 hafa nefnilega ekki náð fram að ganga. Það voru markmið um að þetta gengi enn betur fyrir sig, að efla sýslumannsembættin sem þjónustukjarna þjónustustofnana úti á landi. Í stað þess að halda áfram að reyna að gera það er þeim bara fækkað niður í eitt.

Það er mælt fyrir um að starfsfólk sýslumanna, þegar þessi lög taka gildi, sem er reyndar frestað til 1. janúar 2027, verði starfsfólk hjá hinu nýja embætti og jafnframt tekið fram að starfsfólk kunni í einhverjum tilvikum að hlíta breytingum á starfi vegna skipulagsbreytinga vegna stofnunar nýja embættisins, með hliðsjón af nýju skipuriti et cetera. Af þessu leiðir að líkur eru á að sameiningin verði kostnaðarsöm, sem er reglan, hin almenna regla. Við vitum það. Það hefur verið nefnt að 100 milljónir kosti að sameina stofnanir. Þarna er verið að sameina átta. Ég ætla nú ekki að halda því fram að það sé átta sinnum sá kostnaður heldur séu kannski bara þessar 100 milljónir sá kostnaður sem þarf til á fyrstu tveimur árum og hugsanlega verði þessi sameining án þess að skila tilætluðum sparnaði til lengri tíma. Það virðist heldur ekki tekið tillit til þess að yfirstjórnir embættanna séu sérlega fámennar nú þegar. Því er hætt við að sparnaður við að leggja yfirstjórnirnar niður sé ofmetinn af því að það sé einfaldlega þörf á að í hinu nýja embætti þurfi enn fleiri yfirmenn.

Því skortir hér mælanleg markmið um hvenær og hvernig hagræðing skuli nást. Af þeim sökum er frumvarpið ekki í nægilega góðu samræmi við 1. gr. laga um opinber fjármál þar sem fram kemur að markmiðið sé vandaður undirbúningur áætlana og lagasetningar sem varða efnahag opinberra aðila og öflun og meðferð opinbers fjár. Við meðferð málsins hefur líka komið fram að sýslumannsembættin þyki sum of veikburða til að takast á við yfirstandandi tæknivæðingu og eftirsótta framþróun. Þrátt fyrir þetta virðist ekki hafa átt sér stað raunveruleg umfjöllun um hvort tækifæri séu til endurskoðunar á fjölda embætta og hvernig slíkar sviðsmyndir mæti markmiðum frumvarpsins. Einnig skortir umfjöllun um möguleika á endurskoðun á ráðstöfun rekstrarfjár embættanna sem nýta mætti í þágu þeirra allra, svo sem með sameiginlegri stoðþjónustu án sameiningar. Þetta eru hins vegar alger grundvallaratriði þegar stjórnvöld takast á við framfylgd gildandi byggðaáætlunar og þetta kallar eitt og sér á nánari skoðun.

Við meðferð málsins komu einnig fram áhyggjur af kerfisbreytingu í miðstýrt skipulag í stað staðbundinnar valddreifingar sjálfstæðra embætta. Ég nefndi hérna ástæðuna fyrir því að Vestmannaeyjum var bætt við embættin átta á sínum tíma. Það þótti mikilvægt vegna samgönguaðstæðna að valdsmaður væri á staðnum. Þetta gildir auðvitað miklu víðar á Íslandi yfir vetrartímann, í náttúruhamförum, í ofsaveðri, í óveðrum, á miklu fleiri stöðum.

Áhyggjur eru af þessari kerfisbreytingu, annars vegar vegna óæskilegrar miðstýringar sem ekki á sér erlendar fyrirmyndir á þessu sviði og hins vegar vegna þeirrar óvissu um þróun þjónustu í byggðum landsins sem kann að verða til lengri tíma litið. Hér er kannski rétt að staldra aðeins við. Ég fór í óundirbúna fyrirspurn við hæstv. forsætisráðherra í gær um hver væri raunveruleg stefna ríkisstjórnarinnar í að veita grunnþjónustu hringinn í kringum landið. Ég spurði um erlendar fyrirmyndir vegna þess að erlendu fyrirmyndirnar eru þær að það eru ekki bara tvö stjórnsýslustig, þ.e. sveitarfélögin sem veita auðvitað þjónustu, mjög margvíslega og mikilvæga nærþjónustu við borgarana, og síðan ríkisvaldið. Í mörgum löndum hefur þetta ekki þótt nægjanlegt og til að tryggja að grunnþjónustan sem ríkið veitir sé nálægt íbúunum hefur verið sett á þriðja stjórnsýslustigið, til þess að tryggja að grunnþjónustan sé nálægt borgurum alls staðar í hvaða landi sem er. Danmörk til að mynda, sem er einn þriðji af stærð Íslands, er með slíkt fyrirkomulag. Þótt fjarlægðirnar séu ekki eins miklar og óveður sjaldgæfari og erfiðari samgöngur hafa þeir engu að síður farið þessa leið, að vera með þriðja stjórnsýslustigið, augljóslega í Noregi og Svíþjóð.

Hér á að draga sem sagt grunnþjónustu ríkisins á einn stað í stað þess að taka umræðuna um hvað væri skynsamlegt ef við ætluðum að veita sömu grunnþjónustu, ef ríkið sem annað stjórnsýslustigið veitir ákveðna grunnþjónustu. Byggðastofnun hefur á undanförnum árum verið að reyna að skilgreina hvað sé grunnþjónusta; hvaða grunnþjónusta er það sem við sem greiðum skatta, hvar sem við búum á Íslandi, eigum rétt á að fá, alveg sama hvað er? Við gerum okkur öll grein fyrir því að fjarlægðir gera það að verkum að sum þjónusta verður bara veitt á einum stað. Tökum Landspítalann sem dæmi. Við getum ekki ætlast til þess að þjónusta Landspítalans sé veitt á öllum stöðum landsins hingað og þangað. Þess vegna hafa verið skilgreind mismunandi stig heilbrigðisþjónustu; fyrsta, annað og þriðja stig, og grunnþjónustan sem á að veita á tilteknum svæðum verður að uppfylla að lágmarki fyrsta stig og helst annað stig. Síðan er þá þriðja stigið komið inn á Landspítalann.

Við höfum teiknað landið upp í sex eða sjö heilbrigðisumdæmi. Af hverju ekki átta, hef ég oft spurt um, vegna þess að landshlutasamtökin eru átta og það er mjög margt hefðbundið í þeirra starfsemi. Til að mynda eru sóknaráætlanir sveitarfélaganna eða landshlutasamtakanna sem eru svona millistig á milli þess að vera þriðja stjórnsýslustig — samtal ríkisins við landshlutana er í gegnum landshlutasamtökin, fyrir hönd sveitarfélaga, fyrir hönd íbúanna á tilteknu svæði, þá eru það gömlu kjördæmin, átta. Það hefði t.d. verið brilljant ef heilbrigðissvæðin væru líka átta vegna þess að síðan gerum við þjónustukannanir, lýðheilsuvísa og rannsökum alls konar hluti sem varða íbúana á tilteknu svæði og þá getum við ekki borið það saman inn í landshlutasamtökin, vegna þess að þau dekka ekki nákvæmlega sama svæði og heilbrigðissvæðin. Þess vegna hefur mín hugmynd eða mín nálgun á þetta mál ævinlega verið sú að ef við erum með átta sýslumannsembætti þar sem við getum veitt grunnþjónustu ríkisins á öllum sviðum á einum stað þá ætti það að vera grunneining í þjónustu ríkisins hringinn í kringum landið, Tryggingastofnun, Umhverfisstofnun, Vinnumálastofnun, Vinnueftirlitið, allar þær stofnanir sem hafa einhver tengsl við íbúa landsins, að það geti farið á innan við tveimur tímum, jafnvel 90% á innan við klukkutíma, á slíka þjónustustofnun. Þó svo að í hinum stafræna heimi þurfum við mjög sjaldan að fara á slíkar stofnanir þá kemur það fyrir. En í þessu tilviki þá eiga allir að fara á einn stað og hann mun sogast á höfuðborgarsvæðið jafnvel þótt höfuðstöðvarnar verði settar eitthvert annað. 7% opinberra starfsmanna er staðsett á höfuðborgarsvæðinu, 64% íbúanna eru það. Við erum það land sem við berum okkur saman við sem er með langsamlega mesta borgarfyrirkomulagið, þ.e. það er eins og við séum borgríki í þessu dreifða landi. Það er áskorun að viðhalda byggð hringinn í kringum landið. Ein leið til þess er að ríkisvaldið gangi þar á undan með góðu fordæmi og tryggi að það séu ríkisstofnanir úti á landi, að það séu starfsstöðvar ríkisstofnana úti á landi, að það sé þjónustumiðstöð ríkisins á einhverjum tilteknum svæðum úti á landi.

Ég var að reyna að fá, í þessu samtali við hæstv. forsætisráðherra í gær, upp þessa grundvallarumræðu. Er skynsamlegt að það sé bara eitt þjónustusvæði og allar ríkisstofnanirnar séu bara einar? Hv. þm. Grímur Grímsson vildi ekki ganga svo langt að segja sína skoðun á því hvort lögreglan ætti að vera eitt embætti úr því að sýslumenn eiga að vera í einu embætti en þegar aðgreiningin varð 2015 var jú löggæslan tekin frá sýslumanninum á sínum tíma og búin til embætti lögreglustjóra og sýslumannsembætti. Það væri fullkomlega rökrétt, ef það er meining ríkisstjórnarinnar að besta leiðin til að veita grunnþjónustu til allra borgara landsins sé að gera það frá einum stað, að sameina allt í einn pakka. Þá hlýtur það að vera stefnan.

Við í Framsókn erum hins vegar á þeirri skoðun að það væri skynsamlegra og betra að það væru grunnþjónustur úti á landi. Við erum í dag með átta og það getur vel verið að við ættum að segja: Ja, það er kannski fulldýrt og samgöngur hafa batnað og kannski er bara nóg að vera með fjórar eða þá að við ættum að skilgreina einhverjar nýjar sex. Það myndi hins vegar þýða að við þyrftum að skilgreina upp á nýtt þessi svæði. En að það sé þannig þegar við erum að gera þjónustukannanir innan heilbrigðisumdæma eða innan barna- og menntamálanna, um farsæld barna, að það samsvari þeim íbúafjölda sem er á bak við rannsóknina svo að við getum notað gögnin um það sem við erum að rannsaka. Og að á þessari þjónustumiðstöð ríkisins sem er á hverjum stað sé einhver vinna unnin í kringum þann landshluta og þannig tryggt að grunnþjónustan sé veitt öllum borgurum landsins með sama hætti. Nei, ríkisstjórnin ætlar að segja: Við ætlum að leggja þetta bara niður, við ætlum að hafa einn sýslumann. Þrátt fyrir að 67% landsmanna séu ánægð með þetta og 71% beri traust til þess þá eru það akkúrat þessi embætti sem við ætlum að leggja niður og fara í þessa vegferð. Það er háleitt markmið að ætla að bæta þjónustuna. Vonandi gengur það eftir. Við í Framsókn efumst um að þetta sé rétt leið. Við erum algerlega sannfærð um að það sé skynsamlegra að byggja upp áfram á grunni þeirrar hugmyndar frá 2015 að vera með átta einingar, byggja upp átta einingar grunnþjónustu ríkisins á einum stað, það sé einmitt betri leið til þess að draga starfsfólk ríkisins á slíkar stofnanir, á slíka staði heldur en að dreifa þeim hringinn í kringum landið á einhverjar ótilteknar, óskilgreindar, ekki lögfestar stofnanir einu sinni. Reynslan er sú að ef það er ekki lögfest á Alþingi hvar stofnunin á að vera þá hverfur hún og jafnvel þótt hún sé lögfest, ef það er ekki lögfest hversu margir starfsmenn eiga að vera þá enda þeir hérna í Reykjavík. Það er bara reynslan og við verðum að horfast í augu við það ef við ætlum að byggja upp landið.

Eitt af því sem við ætluðum að gera og ríkisstjórnin er núna að gera er að leggja fram nýja atvinnustefnu. Í innganginum er eitt af meginmarkmiðunum að leggja fram nýtt þróunarverkefni um það hvernig á að auka grunnþjónustu í byggðum landsins. Er það mótvægisaðgerð við öll önnur áform ríkisstjórnarinnar? Af því að ekki bara á að leggja niður sýslumennina átta, taka æðstu embættismenn ríkisins út úr átta stöðum á landinu og setja þá á einn, heldur hefur ríkisstjórnin líka áform uppi um að leggja niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga, sem reyndar eru tíu í dag og ættu bara að vera átta samkvæmt þessari hugmyndafræði sem ég var að nefna hérna áðan. Þar er verið að taka níu framkvæmdastjóra sem eru æðstu störfin hringinn í kringum landið á þessu sviði og leggja þau reyndar undir nýja stofnun sem á að búa til úr Fiskistofu og Matvælastofnun og Verðlagsstofu skiptaverðs, ef ég man rétt.

Þá hefur ríkisstjórnin líka uppi áform um að stokka upp framhaldsskólastigið og búa til reyndar ekki eina miðstýrða stofnun heldur fjórar til sex. Þá spyr ég aftur: Af hverju ekki eina? Af hverju eiga þær þarna að vera fjórar til sex? En það á að fækka rektorum framhaldsskólanna sem eru úti á landi, sem eru þá æðstu stöður í menntakerfi viðkomandi svæðis, um einhverja 20, draga þá í burtu. Hér er ég kominn með 40 manns af þeim sem komast lengst, eigum við að segja hæst í skalann hjá ríkinu, mestu launin, eitthvað slíkt, og draga þau, 40 manns, af landsbyggðinni, í burtu. Ég skil vel að ríkisstjórnin sé með nýrri atvinnustefnu að leggja fram eitthvert nýtt verkefni til að búa til mótvægisaðgerð gegn sínum eigin verkum en ég skil ekki hugmyndafræðina. Ef það er gott að leggja niður embætti sýslumanna — sem í dag virðast njóta ágæts trausts og með því mesta sem við mælum í íslensku samfélagi, bara sambærilegt við Landhelgisgæslu, embætti forseta Íslands, Háskóla Íslands, talsvert meira en Alþingi t.d. og ríkisstjórnir almennt — að þá eigi að fara í þessa vegferð, en þegar kemur að framhaldsskólanum þá eigi kannski að vera fjórar til sex þjónustustofnanir. Ég skil ekki alveg hugmyndafræðina af því að það væri svo auðvelt að segja: Við ætlum að byggja upp landið með því að hafa þjónustustofnanir ríkisins, við ætlum ekki að fara að búa til þriðja stjórnsýslustigið, það er of dýrt fyrir okkur. Við erum búin að fara í gegnum þessa umræðu mjög oft og höfum alltaf komist að því að það er of dýrt, of flókið, við erum of fá, þótt við séum í stóru landi getum við farið aðrar leiðir. Af hverju höldum við okkur ekki við þá hugmynd að byggja upp grunnþjónustueiningar ríkisins? Við getum tekið umræðu um hvort þær eigi að vera fjórar, sex eða átta eða einhver önnur tala.

Eins og ég fór hérna yfir, og hef svo sem farið talsvert út fyrir nefndarálitið frá hv. þm. Ingibjörgu Isaksen sem er fjarverandi á vegum þingsins, þá hefur samt tónninn í þessu áliti verið sá að sá ófyrirsjáanleiki sem er boðið upp á með gildistöku þessara laga sé slíkur að þessi óvissa sé ekki forsvaranleg. Það er óhjákvæmilegt að greina nánar langtímaáhrif frumvarpsins og tryggja með skýrari hætti hvernig svo almennum markmiðum sem eru kynnt í frumvarpinu sé ætlað að birtast landsmönnum. Þetta á einnig við um marga tugi starfa sem sinnt er hjá embættunum í umboði annarra ríkisstofnana, þ.e. á þjónustukjörnunum sem þó eru komnir, en veruleg óvissa virðist ríkja um framtíð slíkrar þjónustu og þar með tilvist slíkra starfa hjá sameinuðu sýslumannsembætti, sem er hræðilega mikið miður vegna þess að þarna var kominn vísir að því að byggja upp þjónustukjarna ríkisins á einum stað. Við gengum ekki nógu langt.

Þegar við gerðum könnun fyrir nokkrum árum á meðal forsvarsmanna ríkisstofnana um hvað væru óstaðsett störf, hvaða störf þyrfti ekki að vinna á höfuðstöðvunum, sem algengast var að væru hér á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjavík, þá kom í ljós að svona margir töldu að það væru 10, 20, 30, 40%. Ég man eftir tveimur stofnunum, ég ætla ekki að nefna þær en þær voru nokkuð stórar, báðar tvær. Önnur stofnunin taldi að öll störf væru færanleg nema kannski húsvörðurinn. Önnur sambærileg stofnun, og þetta voru stofnanir sem töldu 100, 200 starfsmenn og voru áþekkar, taldi að enginn starfsmaður væri í flutningshæfu starfi, þeir þyrftu allir að vera á höfuðstöðvunum. Þess vegna sagði ég: Þetta verður undir Pétri og Páli, Gunnu og Siggu komið, forsvarsmanninum, sýslumanninum, dómsmálaráðherranum sem fær hér mikið vald, algjörlega komið hvernig þessi innleiðing á að vera, hvort það verði haldið áfram að reyna að þróa þjónustustofnanir ríkisins hringinn í kringum landið þó að þar verði enginn sýslumaður yfir þeirri stofnun eða hvort það verði bara haldið áfram að láta þetta reka einhvern veginn. Þá óttast ég að það verði ekki bara 71% starfsmanna ríkisins staðsett þar sem 64% búa heldur verði það talsvert hærra hlutfall. Ég óttast það og þess vegna höfum við í Framsókn sagt: Það er mikilvægt að við höldum þessum æðstu embættismönnum ríkisins á staðnum til að búa til ákveðið vald, virðingu hreinlega manneskjunnar sem er með kaskeitið á höfðinu þegar til þeirra kasta kemur, en það þurfi ekki að bíða í tvo, þrjá, fjóra, fimm, sex tíma eftir embættismanninum að sunnan með valdið þegar til slíks kemur. Við höfum séð það hjá svo mörgum ríkisstofnunum þegar við erum að færa til að mynda eftirlitið frá heilbrigðiseftirlitinu, fórum með það til Matvælastofnunar og Fiskistofu vegna kröfu frá ESA, afleiðingin varð sú að eftirlitið varð miklu dýrara vegna þess að sérfræðingarnir sem komu í eftirlitið komu í flugi frá Reykjavík og keyrðu síðan langar leiðir út um land til að sinna þessu sama eftirliti. Það var ekki skilvirkara. Ég ætla ekki að halda því fram að það hafi verið lakara en ég ætla að halda því fram að það hafi ekkert verið betra.

Ég held því að miðstýring opinberrar þjónustu sé varasöm leið og við í Framsókn teljum að það sé allt of mikil óvissa fram undan hjá þessu fólki og seinkun gildistöku til 1. janúar 2027 hjálpar ekki til við óvissuna. Hún gefur hins vegar ríkisvaldinu tíma til þess að greiða úr óvissunni en óvissan verður bara lengri hjá þessu fólki. Hvað gerir óvissa? Hún gerir það að verkum að margt fólk fer að leita að einhverri vissu í lífinu og færir sig um set. Það getur hreinlega þýtt það að fólk fari að fara úr þessum störfum þar sem þjónustukjarnarnir eru ef það finnur sér öruggari vinnu á því svæði þar sem það vill búa vegna þess að óvissan er fyrir hendi. Þannig að það er ekki gott að koma fram með breytingar og segja að eftir 14 mánuði verði þetta allt ljóst. Það er ekki gott. Þetta er ekki nægilega vel undirbúið.

Til að tryggja að sameining sýslumannsembætta skili raunverulegri hagræðingu — og hér langar mig einfaldlega að nefna að því hefur verið haldið fram að það sé óstjórnlega flókið að tryggja að eitthvert eitt embætti geti sinnt þjónustu fyrir allt landið. Við hérna í þessum sal getum sett hvaða lög sem okkur dettur í hug. Ég hef aldrei skilið þessi rök. Ef við settum það í lög að sýslumannsembættið á Húsavík fengi þá skilgreiningu að sinna þessu verkefni samkvæmt lögum fyrir alla landsmenn þá get ég ekki skilið að það sé flókið, ég get það ekki, og í sömu lagagrein yrði útskýrt að öll hin sýslumannsembættin, þar með talin sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu, væru þjónustustöð fyrir þetta starfsverkefni sýslumannsins á Húsavík — ég hef aldrei skilið af hverju það sé ekki hægt. Ég bara skil það ekki. Ég skil ekki að eina leiðin til að tryggja að allir fái sömu þjónustu sé að sameina allt í eitt. Við höfum þetta vald í þessum sal til þess að setja þau lög sem okkur sýnist og getum tryggt grunnþjónustu við íbúana hringinn í kringum landið.

En svo ég ítreki hér í lokin lokaorð og tillögu okkar í Framsókn: Til að tryggja að sameining sýslumannsembættanna skili raunverulegri hagræðingu, bættri þjónustu — munið, hún er talin núna af almenningi 67% — og fjölgun starfa á landsbyggðinni er nauðsynlegt að frumvarpið verði endurskoðað í heild með það fyrir augum að setja fram skýrari markmið og áætlun um hvernig markmið frumvarpsins skuli nást.

Að framangreindu virtu leggur 1. minni hluti til að frumvarpinu verði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar.

Undir þetta ritar hv. þm. Ingibjörg Isaksen.

Við í þingflokki Framsóknar höfum rætt þetta mál ítrekað á liðnum misserum og erum öll sammála um þessa vegferð. Við teljum að þessi vegferð ríkisstjórnarinnar sé varhugaverð, hún sé röng, það sé röng stefna að stefna að miðstýringu og við teljum að það sé betra að tryggja að sýslumannsembættin séu til með sýslumanni, með valdsmanni í héraði, og það sé hægt að ná fram markmiðum stafrænna breytinga, stafrænnar þjónustu, með því að setja lög í landinu til að tryggja að svo verði hægt.