157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[16:13]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir andsvarið. Ég er alveg sammála því og það hefur verið almenn skoðun að þjónusta Skattsins sé góð. Hún er orðin meira og minna stafræn og við þurfum ekki að fara neitt; við köllum ekkert á Skattinn þegar einhverjar náttúruhamfarir ganga yfir eða eitthvert vesen er, heldur hringjum við á lögregluna, björgunarsveitirnar og sýslumanninn. Hann mætir með kaskeitið og tekur valdið. Ég hef mætt sem slíkur aðkeyptur sérfræðingur og það skipti máli að þar mætti sýslumaður í fullum skrúða til að ná fram því sem þarna þurfti að gerast. Ég var sem sagt aðkeyptur sérfræðingur að sunnan í því tilviki.

Það sem þarf til, og ég var aðeins að koma inn á það í ræðu minni, er sú staðreynd að vinna gegn þessu lögmáli, sem er ekki náttúrulögmál heldur lögmál mannanna. Í höfuðstöðvunum, þar sem flestir eru, þar færðu starfsframann. Þar eru mestir möguleikar fyrir maka eða eitthvað slíkt. Þar sem mestur fjöldi er af fólki er eðlilegt að það séu fleiri tækifæri. Það sogast allt hingað, þannig að það þarf markvisst að vinna gegn þessu. Eina leiðin til þess er að lögfesta það af Alþingi. Ef það er ekki gert með þeim hætti þá er tilhneigingin alltaf í hina áttina, þetta lögmál sem er óskilgreint en er ekki náttúrulegt, þetta er mannlegt, þetta er ekki náttúrulögmál. Það þarf að lögfesta og svo þarf vilja. Það þarf pólitískan vilja. Ef við förum í gegnum söguna þá eru ekki margir flokkar sem hafa staðist þá áskorun að þora. Það er alltaf æpt að það sé verið í einhverju kjördæmapoti og það sé verið að gera þetta og hitt, sem er bara þvæla. Þetta er pólitísk stefna.

Ég man eftir Danmörku fyrir nokkrum árum þar sem ríkisstjórn kom og sagði: Við ætlum að flytja stofnanir út á land. Ein rökin voru þau að það byggju allt of margir á Kaupmannahafnarsvæðinu þannig að þau fluttu stofnanir, risastórar stofnanir, í litla bæi, 1.000 manna bæi eða jafnvel minni, 50 manna stofnanir. Það yrði allt vitlaust á Íslandi ef við gerðum það. En þetta gerði danska ríkisstjórnin. Þetta var markviss stefna þeirra stjórnar. Svo fóru fjölmiðlamenn að skoða hlutina og þá kom í ljós að það voru hlutfallslega miklu færri íbúar Kaupmannahafnar ríkisstarfsmenn heldur en á landinu; akkúrat öfugt við það sem er hér. Hér er akkúrat tækifæri og ég skora á ríkisstjórnina að fara í þá vegferð, að setja það á oddinn að færa starfsmenn ríkisins meira út á land með þeim leiðum sem eru færar. Þessi leið, sem hér er lögð til grundvallar, er held ég andstæðan. Hún mun soga starfsmennina suður.

Ég sé að klukkan er ekki í lagi. Ég er örugglega búin að tala í þrjár mínútur og bið forseta afsökunar.

(Forseti (KÁB): Það er ekki vandamálið. Klikkað stendur eitthvað á sér en við höldum ótrauð áfram.)