sýslumaður.
Virðulegi forseti. Augljós galli og ókostur við lögfestingu er að það þarf að fara í gegnum þingið og það tekur tíma. Þess vegna getur það gerst að einhver stofnun hafi verið færð og það sé ekki búið að laga textann í lagabreytingunni sem er þá óleyfilegt í raun og veru. En menn hafa nú kannski komist upp með það. Gallinn við reglugerðir er auðvitað að ráðherra getur bara breytt þeim að vild, án aðkomu þingsins. Sem þýðir að jafnvel þó að meiri hluti þings, jafnvel meiri hluti ríkisstjórnarinnar, sé á einhverri skoðun þá getur viðkomandi ráðherra gert það sem honum dettur í hug. Við höfum séð dæmi um slíkt. Við höfum líka séð dæmi þar sem hlutir eru lögfestir. Ég man til að mynda eftir framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs, það var auglýst sem óstaðsett starf. Hann var alltaf ráðinn og höfuðstöðvarnar voru alltaf í Reykjavík þangað til því var breytt og það var lögfest að hann ætti að vera í þjóðgarðinum. Meira að segja það reyndist erfitt, að tryggja framkvæmdastjórann, af því að það var ekki endilega vilji viðkomandi ráðherra eða einhvers slíks.
Ef menn vilja ganga þessa vegferð og tryggja að störfin verði til þangað til við breytum þessari menningu — sem að mínu mati er ómenning, að allt þurfi að sogast inn, en ég skil það. Fyrir starfsfólkið sem vill fá starfsþróun innan viðkomandi embættis hefur reynslan verið sú að ef þú ert ekki á höfuðstöðvunum, ef þú kemst ekki nema ákveðið langt á útstöðinni, þá færðu ekki framgang í starfi og færir þig á höfuðstöðvarnar, ef þú hefur metnað til að komast ofar í stigann hjá viðkomandi stofnun. Ef við ætlum að breyta þessu þá verðum við að vera skýr í lagatextanum og við verðum að hafa skýran vilja til þess hvernig við ætlum að byggja upp (Forseti hringir.) til að mynda grunnþjónustu við borgara landsins. Við í Framsókn efumst um að þessi leið sé rétt, eða við erum reyndar sannfærð um að hún sé röng, svo það sé nú ítrekað, frú forseti.