157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[16:57]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta allsh.- og menntmn. (Sigurður Örn Hilmarsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni fyrir sitt innlegg og er hjartanlega sammála honum. Þetta er að mínu viti nokkuð sérstakt vegna þess að frumvarpið sem við erum að tala um hér á ekki að taka gildi fyrr en 1. janúar 2027. Það er þó nokkur tími til stefnu. Ég hefði haldið að það væri alla vega meiri virðingarvottur gagnvart okkur sem störfum hér í þinginu að gefa okkur einhverja hugmynd um hvernig á að útfæra öll þessi mál, eins og hv. þingmaður talaði um, hlutverk sýslumanna í kosningum og öll þessi viðkvæmu mál sem sýslumenn eiga að fara með um landið allt og eiga sér þessa löngu sögu. Allt frá árdögum lýðveldisins höfum við haft einhvers konar fulltrúa framkvæmdarvalds hér og núna er verið að taka það upp án þess að það sé búið að útfæra það. Mér er það algerlega á huldu hvernig á að gera það vegna þess að allt kerfið er uppbyggt þannig að þetta séu aðilar sem starfa innan ákveðinna umdæma og hafi til þess faglega þekkingu og reynslu að sinna þeim verkefnum sem þeim eru falin akkúrat innan síns umdæmis. Það er því verið að taka það upp og þess vegna hefði farið betur á því, að mínu viti, að þessi frumvörp væru lögð fram samhliða og að bandormurinn væri einfaldlega hluti af þessu frumvarpi. Það hefur reynst nokkuð erfitt vegna þess að það er bara flókið. En í upphafi skal endinn skoða. Það hefði verið heppilegra að gera það hvað þetta mál varðar.