sýslumaður.
Virðulegur forseti. Málið hefur verið rakið hér mjög vel og kannski ekki miklu við að bæta við mjög góða ræðu og yfirferð frá hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni sem gerði mjög vel grein fyrir málinu og þeim breytingum sem við Sjálfstæðismenn viljum gera á því. Það er samt áhugavert að hlusta á sjónarmiðin sem koma fram og kannski ekki síst frá hv. formanni Framsóknarflokksins, Sigurði Inga Jóhannssyni, sem mér virtist nú í þessu máli, svona gagnvart stjórnsýslunni og nútímanum sem við okkur blasir og öllum þeim tæknibreytingum sem hafa átt sér stað, vera nokkuð aftarlega á merinni, aftur í gömlum tíma. Ef það væri lagt út frá þeim sjónarmiðum sem hann rakti hérna þá þyrfti helst að vera sýslumaður í hverju sveitarfélagi. Sveitarfélögin þyrftu reyndar að vera sem flest. Það þyrfti að vera lögreglustjóri í hverju sveitarfélagi og það þyrfti að vera dómari og það þyrfti að vera skattmaður í hverju sveitarfélagi o.s.frv.
Við erum einmitt að bregðast við nýjum tímum. Þegar þessar hugmyndir voru settar fram í þeim búningi sem þær birtust okkur 2022 var það gert eftir ítarlega skoðun og ekki af neinni tilviljun. Það er nefnilega þannig að starfsemi sýslumannsembættanna og störf starfsmanna þeirra hafa tekið grundvallarbreytingum í tímans rás og til þess að geta haldið uppi öflugum stjórnsýslu- og þjónustustöðvum sem víðast um land í þjónustu við íbúana, sem er hin eðlilega krafa, og til þess að geta svarað því kalli að sú þjónusta sé sem næst fólkinu þá þurfum við að breyta til. Það er að fjara undan fyrirkomulaginu eins og það er í dag. Ég heimsótti margt fólk, heimsótti allar sýslumannsskrifstofurnar, allar starfsstöðvarnar á sínum tíma, talaði þar við starfsmennina og á mörgum stöðum oftar en einu sinni og við fórum svona yfir það hvernig starfsumhverfið hefur verið að breytast. Nýverið eru þinglýsingar, sem eru kannski eitt af stærri málunum, að verða rafrænar og það dregur verulega úr þessari starfsemi. Það er líka ákveðin hætta á því þegar embættin eru svona fámenn að þau geti ekki staðist þær kröfur sem nútíminn gerir til embættanna um starfsfólk með þekkingu og reynslu, starfsfólks sem er jafnvel að einhverju leyti á hærri launatöxtum, hefur meiri menntun og sérþekkingu. Þess vegna er mjög mikilvægt að horfa til fleiri verkefna sem er hægt að sinna í miðlægri þjónustu á þessum stöðum fyrir aðrar ríkisstofnanir. Þar vorum við með margar hugmyndir til þess einmitt að styrkja stoðir undir hverri starfsstöð fyrir sig og hverju starfssvæði fyrir sig.
Það var engin tilviljun að við lögðum til að starfsstöðvarnar, þær sem eru í dag, yrðu lögfestar. Eins var það engin tilviljun að við fengum Byggðastofnun til að gera úttekt á því hvar væri heppilegt að staðsetja skrifstofu höfuðstöðvanna, þar sem væri einhvers konar miðlæg þjónusta í mörgu tilliti, til að mynda fjármálum og rekstri og öllu slíku. Það var vegna ákalls sveitarfélaga, það var vegna ákalls fólksins sem vinnur á þessum starfsstöðvum úti um landið vegna þess að, eins og það hefur verið orðað hér, sporin hræða. Við erum með fjölmörg dæmi um að löggjafanum eða framkvæmdarvaldinu hafi verið falin nánari útlistun á slíkum atriðum en það hefur ekki tekist sem skyldi. Það er hægt að rekja mörg dæmi og þau rök en ég ætla ekki að fara yfir þau hér.
Það var í þágu víðtækari sáttar og samstarfs og staðfestingar á þeirri hugmynd sem lá að baki því að sameina sýslumannsembættin, hugmynd sem gengur út á það að efla starfsemi þessara stjórnsýslustöðva, gera þær öflugri, færa þeim miðlæg verkefni eftir landsvæðum og nýta þannig starfskraft og skjóta þannig styrkum stoðum undir fjölbreyttari starfsemi og þar með koma til móts við fjölbreyttari kröfur til starfsmanna, skjóta stoðum undir þær kröfur að á öllum starfsstöðvum gætu verið löglærðir fulltrúar og svo aðrir sérfræðingar eftir því sem við á. Miðlæga starfsemin yrði síðan í höndum sérfræðinga sem væru á mismunandi svæðum. Sýslumannsskrifstofan á Húsavík var alls ekki hugsuð sem stærsta starfsstöðin í þessu tilliti. Það var líka alveg ljóst að sú hugmynd sem lá að baki því að fara í þessa vegferð á sínum tíma kallaði á umtalsverða fækkun starfsmanna í stærsta sýslumannsembættinu í dag sem er á höfuðborgarsvæðinu, er í Kópavogi. Það er nú mitt bæjarfélag, þaðan sem ég sæki umboð mitt ásamt fleirum í kjördæminu. Ég fór einmitt á fund þar, mjög fjölmennan fund með á annað hundrað starfsmönnum, og ég varð ekki var við annað en, svona að mestu leyti, að fólk hefði fullan skilning á því að þessu þyrfti að breyta. Þar var ég að tilkynna fólki að það yrði alveg örugglega fækkað umtalsvert á þeirri starfsstöð sem var í mínu sveitarfélagi. Við vorum meira að segja farin að horfa til þess, á grundvelli þess að leigusamningur sýslumannsembættisins í Kópavogi er mjög hagkvæmur, hvaða stofnanir við gætum flutt þar inn þegar þetta kæmi til framkvæmda.
En það er eins og þessi ríkisstjórn, sem kallar sig verkstjórn, það er eins og verkstjórnin og landsbyggðin séu eins og vatn og olía. Þetta getur bara ekki blandast saman. Þeim er einhvern veginn alveg fyrirmunað, finnst manni oft og tíðum, að hlusta á sjónarmið landsbyggðarinnar þrátt fyrir að það komi mjög sterkt fram í mjög mörgum umsögnum á sveitarstjórnarstiginu, nánast öllum, með einhverjum mismunandi útfærslum á þeirri tryggingu sem þarf og þeirri sýn sem þarf. Það er einmitt tækifæri Alþingis núna og ég skora á þingmenn stjórnarflokkanna að tala fyrir því að við breytum þessu núna við afgreiðslu málsins. Það er tækifæri núna til að leggja skýrar línur og senda alveg kristaltær skilaboð um hvert við erum að stefna.
Ráðherrar koma og fara og flokkar koma og fara úr ríkisstjórn og það er lágmarkskurteisi og sanngirni að við hlustum á rödd landsbyggðarinnar og sýnum þá virðingu að hafa þetta ekki í óvissu og upp á duttlungaákvarðanir embættismanna eða ráðherra komið á hverjum tíma. Það verði ákveðinn stöðugleiki í byrjun. Þessu má alltaf breyta síðar ef þingið kemur sér saman um það. En ef við lögfestum þetta þá verður þessu ekki breytt nema með aðkomu þingsins. Það er grundvallaratriði. Í því felast svo öflug skilaboð um það að við ætlum að taka á þessu saman með þeim sem eiga mest undir. Það mun auðvelda allan undirbúning þegar þessi fasti til að byggja ofan á liggur til grundvallar. Þá er kominn fasti og þá er byggt ofan á þá staðreynd. Þá fara menn að hugsa um þetta, þeir sem eru í þessari undirbúningsvinnu, meira út frá verkefnum, verkaskiptingu milli starfssvæða. Hvernig getum við mannað? Hvaða svæði er það? Er það Austurland eða er það Norðvesturland sem er best búið til þess að taka utan um þetta ákveðna verkefni í miðlægri þjónustu fyrir öll embættin og ráða síðan til sín sérfræðinga á því sviði? Eins og á Blönduósi sem er með innheimtuna, það er gjarnan tekið sem dæmi.
Það er líka hægt að hugsa þetta út frá því að við eigum mjög víða á þessum starfsstöðvum mikið vannýtt húsnæði. Það er einmitt hægt að taka tillit til þess. Já, hérna eigum við starfsstöð, húsnæði sem er algjörlega vannýtt þar sem jafnvel er verið að borga leigu eða ríkið á og þá er verið að borga leigu til ríkisins. Það er hægt að fullnýta það. Þetta mun einfalda stórkostlega allan undirbúning og gefa miklu meiri frið og ró yfir þessari sameiningu með þá vissu í hendi að starfsstöðin er ekki að flytja. Hún verður ekki gerð að engu, allt verður hugsað til þess að efla hana.
Virðulegi forseti. Í dag er víðtæk sátt hér í þinginu um að stíga þessi skref til breytinga. Það er allt öðruvísi en var fyrir þremur árum eins og í svo mörgum málum sem við erum að fjalla um hér í dag. Þá varð uppi mikið fjaðrafok í fjölmiðlum og í þinginu og meira að segja einhverjir þingmenn núverandi stjórnarflokka — sumir þeirra höfðu reyndar komið til mín eins og Viðreisnarþingmennirnir og lýst yfir stuðningi við málið strax — og aðrir voru með efasemdir um útfærslur o.s.frv. En nú erum við með þessa breiðu sátt. Við erum með mál sem við getum afgreitt í sátt. Ég veit ekki hvort ég treysti mér til þess í þessum grundvallaratriðum að styðja málið ef menn ætla að bíta höfuðið af skömminni og geta ekki tekið þátt í að svara þessu ákalli landsbyggðarinnar. Eða var verið að breyta þessu bara til þess að breyta einhverju?
Ég vona, virðulegur forseti, að við getum náð samstöðu um þetta. Þetta er vel rökstutt. Þetta er vilji þeirra sem eiga mest undir. Hæstv. dómsmálaráðherra hefur nýverið í viðkvæmu máli vitnað til þess hver sé skoðun almennings í samfélaginu, hver sé skoðun þingsins o.s.frv. Ef hún horfir núna til almennrar skoðunar í samfélaginu þá er ég alveg sannfærður um að það, að því gengnu að það verði farið í þessar breytingar, sé ríkur vilji til þess að hlýða þessu kalli. Það er til mikils að vinna vegna þess að við erum að stíga stórt skref. Við erum að stíga skref til mikilla tækifæra til að efla þjónustu úti um land. Við myndum sýna það best í verki með því að stíga skrefið með þeim hætti sem lagt er til í þeirri breytingartillögu sem liggur fyrir.