sýslumaður.
Virðulegur forseti. Þegar við hófum vinnu við þetta strax og ég kom í ráðuneytið komum við að tómu blaði. Það var ekki búið að vinna neina undirbúningsvinnu að því. Ég var búinn að vera í embætti svipað lengi og núverandi dómsmálaráðherra hefur verið í embætti þegar þetta frumvarp lá fyrir fullbúið á sínum tíma, ásamt reyndar frumvarpi um sameiningu dómstóla sem ég mun flytja hér framsögu um á eftir. Ég veit ekki hvað hæstv. dómsmálaráðherra er búinn að fara og heimsækja margar starfsstöðvar sýslumanna úti um land. Á þessum undirbúningstíma fór ég tvisvar á flestar stöðvarnar og talaði mikið við fólkið. Það var sérstakt teymi í ráðuneytinu sem fór einmitt í það að tala við þetta fólk og fylgja þessum heimsóknum eftir. Það fór teymi frá ráðuneytinu og heimsótti síðan í kjölfarið allar starfsstöðvarnar, einmitt til að safna þessum upplýsingum saman. Það er mjög hæft starfsfólk í ráðuneytinu, alveg yndislegt fólk sem ég starfaði með þar sem vann þessa vinnu og þessi vinna er örugglega til þar. Hugmyndirnar voru margar. Ein hugmynd var til að mynda sú að færa undir einn hatt fjölmargar úrskurðarnefndir hér og þar í samfélaginu. Einhverjir orðuðu það þannig að þær væru í skúffum hjá lögmönnum úti í bæ og prófessorum uppi í háskóla. Úrskurðarnefndir um hitt og þetta nema tugum, líklega hátt í 60 svo ég fari með réttar tölur. Hugmyndin var að taka allar þessar nefndir og setja þær inn í þessi embætti. Það myndi kalla á grunn fyrir löglærða fulltrúa og hin fjölbreyttustu verkefni sem hægt væri að dreifa á milli eftir sérþekkingu sem myndaðist á stöðvunum. Það er því auðvitað bara leitað til fólksins sem þekkir þetta og kann þetta og það var bara góð vinna komin í gang með það. Ég hef því trú á því að ráðherra gangi að ágætri vinnu og undirbúningi þar.