157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[17:28]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er nefnilega önnur leið og þetta er eitt af því sem gerir andrúmsloftið hvað erfiðast og grunninn fyrir starfsfólkið. Það er líka ákveðin hætta á því að það verði atgervisflótti frá einhverjum stöðum og að fólk sem er ekki alveg öruggt með sína stöðu til framtíðar leiti annað og fái jafnvel tilboð annars staðar frá sem það stekkur á. Það er hægt að slá alveg ofsalega mikið á þessa óvissu með því að samþykkja breytingartillöguna. Þá fær fólk að vita það, hvort sem það starfar á Egilsstöðum eða Seyðisfirði, á Blönduósi eða bara hvar sem er, á Sauðárkróki eða Siglufirði, að starfsstöðin verður áfram. Það veit að það mun þurfa starfsfólk, hver sem verkefnin verða og hvernig sem þau þróast. Það verður áfram. Það gefur auðvitað allt annan blæ.

Eins og ég sagði í máli mínu áðan var það engin tilviljun að það var ákveðið að gera þetta. Ég veit að margir embættismenn höfðu miklar efasemdir um þetta. Ég hef alveg skilning á því. Ef við værum bara með okkar prívatfyrirtæki sneri þetta kannski svolítið öðruvísi við. Við erum hins vegar að tala um svo stórt atriði sem snýr sérstaklega að landsbyggðarkjördæmunum. Við þurfum að reyna að gera þetta í sem mestri sátt við íbúana, við sveitarstjórnarfólkið og náttúrlega við starfsfólkið. Sá grunnur sem myndast við að gera þetta — og ég skil eiginlega ekkert í því hvað það er sem liggur til grundvallar því að breyta þessu annað en bara þörf til að breyta einhverju í upphaflegu frumvarpi — mun skapa miklu meiri frið (Forseti hringir.) um að innleiða þessar breytingar sem mun taka svolítinn tíma.