sýslumaður.
Herra forseti. Ég starfaði lengi sem sýslumaður, kannski sá eini á þingi í dag sem það hefur gert, og tel mig þar af leiðandi kannski neyddan til að koma hér upp og segja mér skoðun á þessu frumvarpi. Ég hef gert það áður. Þetta er ekkert nýtt fyrir mér. Allan þann tíma sem ég var sýslumaður, það eru orðin 27 ár síðan ég hóf störf sem sýslumaður og rúmlega 30 ár síðan ég byrjaði hjá sýslumannsembætti, þá hefur eiginlega allan tímann verið í gangi linnulaus varnarbarátta þessara embætta fyrir því að lifa, í raun og veru, og fá að standa. Þau voru í upphafi 1990, held ég 27, fækkaði svo smám saman, kannski af náttúrulegum orsökum að einhverju leyti, en stóra fækkunin varð 2015 þegar embættunum var fækkað úr 24 í níu.
Það er auðvitað alger óþarfi, herra forseti, að sinna einhverri varnarbaráttu fyrir embætti sem eru barn síns tíma og eru stöðnuð eða eitthvað slíkt. En sýslumannsembættin eru það ekki, herra forseti. Þau eru starfrækt víða um land, útibú og skrifstofurnar sjálfar, og sinna margvíslegum þjónustustörfum við íbúana. Ég hef talið og hef alltaf talið það vera mjög mikilvægt að þessum störfum sé sinnt vel. Þetta eru störf eins og uppboð, nauðungarsölur, aðfarargerðir sem skiptast í fjölmargar mismunandi gerðir, oft á tíðum mjög flóknar eins og lögbann og kyrrsetning og fleira slíkt, ýmis leyfismál, þinglýsingar. Það er oft talað mikið um þinglýsingar en þær eru alls ekkert meginverkefni sýslumanns, alls ekki. Ég hugsa að þinglýsingar séu kannski svona 10% af venjulegum störfum embætta, myndi ég halda, ég hef starfað á nokkrum embættum og þetta eru kannski 10% af starfinu. Stafræn breyting á sviði þinglýsinga sem hefur orðið undanfarin ár og stendur til að auka enn frekar kemur ekki til með að úthýsa því að þarna starfi fólk og veiti þjónustu því það er svo ýmislegt annað. Það eru fjölskyldumálin, skilnaðarmál, forsjármál, faðernismálefni, meðlagsmál og alls kyns slík mál. Það eru dánarbúsmál, hjónavígslurnar, það er umboð fyrir Tryggingastofnun og Sjúkratryggingar og einn þáttur sem lítið er minnst á, innheimta opinberra gjalda, er stór þáttur svo fátt eitt sé talið. Þessi verkefni hverfa ekki, hvergi á landinu, ekki á minnstu stöðum og einhver þarf að sinna þeim. Það er hægt að sinna þeim með einhvers konar stafrænum hætti að einhverju leyti. En það kemur ekkert í staðinn fyrir það að í mörgum þessum málum þarftu starfsmann og oft á tíðum löglærðan starfsmann.
Ég hef miklar áhyggjur af því í þessu frumvarpi, ef þetta frumvarp verður að lögum og það verður einn sýslumaður, hvort löglærðum starfsmönnum þessa embættis, sem verður þá um allt land, muni fækka. Ég tel miðað við reynsluna algjörlega fullvíst, a.m.k. úti á landi á minni stöðum, að það verði lengra að sækja þá þekkingu, lögfræðiþekkinguna. Þeir munu koma, þessir löglærðu fulltrúar, keyrandi eða fljúgandi frá höfuðstöðvunum til að sinna þessum embættisverkum sem verða að sjálfsögðu ekkert mjög mörg og ekkert daglegt brauð. En þetta yrði mjög mikil breyting frá því sem nú er þegar á flestum stöðum er ekkert svo langt í næsta löglærða fulltrúa. Þó að það sé hægt að finna dæmi um að það séu þó nokkrar vegalengdir þá óttast ég að þetta muni breytast töluvert. Og enn þá lengra verður í yfirmanninn, enn þá lengra verður að sækja til yfirmannsins, þ.e. sýslumannsins sjálfs. Ef þú ert að rækja einhver erindi sem þér finnst þurfa að taka ákvörðun um þá þarftu að sækja yfirmanninn — sem er hvar? Hann er þá staðsettur að öllum líkindum á höfuðborgarsvæðinu, eins og í flestum tilvikum, og þá þarf að hringja og bíða þar í einhvers konar skiptiborði símtala eins og við þekkjum svo vel og allir hafa sögu um að gefast upp á. Þetta er minn ótti.
Markmið frumvarpsins eru, eins og ég les hér á bls. 5, þrjú og eitt þeirra er að gera þjónustu við almenning eins góða og hægt er í fyrsta lagi, að þjónustan verði betri. Það sem ég er að lýsa t.d. með aðgengi að embættunum, aðgengi að starfsfólki, aðgengi að þekkingunni, aðgengi að stjórnuninni, gæti orðið verra eins og ég lýsti því. Það hef ég séð í gegnum minn starfsferil á ýmsum sviðum opinberrar þjónustu, t.d. þegar skattstjórarnir hurfu og það var sameinað í eitt embætti og tollstjórinn hvarf og það var sameinað í eitt embætti og síðan var það auðvitað sameinað í eitt allsherjarembætti. Öll þessi þjónusta verður miklu fjarlægari íbúunum. Þá erum við komin að því sem er grundvallaratriði að mínu mati í þessu, þ.e. þessi þekkingarleki sem á sér stað frá landsbyggð yfir til stærri staða eins og höfuðborgarinnar mun, ef þetta frumvarp verður að lögum, aukast frekar en minnka. Því miður, herra forseti, þá óttast ég það. Ég veit, og ég er alveg læs á greinargerðina, að þarna eru menn með góðan ásetning en mín reynsla, sem er löng og kannski allt of löng, segir mér því miður annað.
Ef menn ætla að efla landsbyggðina, tala um það á góðum dögum að efla landsbyggðina, þá er það ekki leiðin að sameina stofnanir í eina sem yfirleitt er staðsett á höfuðborgarsvæðinu eða mjög nálægt því. Það dregur einungis máttinn úr dreifðari byggðum. Við höfum oft séð það sem höfum unnið lengi í þessum geira að þegar það kemur samdráttarskeið, sem gerist alltaf reglulega, og það þarf að spara einhvers staðar í ríkinu þá er auðvitað langauðveldast að spara svolítið, ekki á skrifstofunni sem ég vinn á heldur á skrifstofunni sem er þarna lengra í burtu. Það er bara mannlegt og ég skil það svo sem alveg. En þetta er tilhneigingin og hefur alltaf verið. Við höfum séð þetta og ég gæti grafið upp dæmi en þetta er svona það sem við höfum horft á allt of mikið. Ég óttast það.
Við í Miðflokknum höfum lagt til að þessu frumvarpi verði alfarið hafnað. Það kom mér á óvart, herra forseti, að í nefndaráliti meiri hlutans sé lagt til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Það kom mér á óvart. Ég hélt ræðu í 1. umræðu um þetta mál og benti á að það væri hugsanlega hægt að laga þetta frumvarp. Hv. þm. Jón Gunnarsson talaði fyrir því líka, þ.e. að gera nokkrar breytingar eins og það að fastsetja sýslumann úti á landi, sem er skárra, illskárra, einnig að fastsetja svæðisstjóra, sem er líka skárra, og svo að sýslumaðurinn sjálfur, sem ég sé að 2. meiri hluti leggur til, sé löglærður. Það tel ég líka vera eðlilega og sjálfsagða breytingu vegna þess að jafnvel þótt þú sért ágætur í stjórnun og hafir mikla hæfileika og menntun á því sviði þá er starf sýslumanna, eins og ég nefndi áðan, margþætt og fjöldamörg viðfangsefni lögfræðilegs eðlis sem þarf að taka á. Auðvitað taka starfsmenn þessar ákvarðanir, einhverjir færir fulltrúar sem eru orðnir sérhæfðir á því sviði, þeir gera það, en sýslumaður er þó alltaf til ráðgjafar og til að bera sig upp við og eiga fundi með til að taka ákvörðun. Menn gera þetta ekki bara einir inni á skrifstofu, ekki ef það eru stór og erfið mál. Ég held að það væri líka til bóta, fyrir utan hin tvö atriðin sem ég nefndi, að meiri hluti nefndarinnar hefði horft á þetta og hefði haft kjark til þess að breyta þessu. Það er til bóta að hafa svæðisstjóra, að ákveða að sýslumaður yrði einhvers staðar úti á landi og að sýslumaður sjálfur yrði löglærður. Þetta er til bóta. Þess vegna er ég hissa á því að meiri hlutinn hafi þverskallast við og ákveðið að mæla fyrir því að frumvarpið yrði óbreytt eins og það birtist okkur hér í upphafi.
Ég ætlaði nú að tala um ýmislegt annað, margt annað. Og varðandi þessa áráttu sem ég var að lýsa áðan, sem ég hef orðið vitni að síðustu 30 árin, þá áráttu að sameina stofnanir og leggja niður stofnanir, aðallega úti á landi, þá er það líka þannig í mínum augum að þú ert alltaf að búa til mjórri píramída. Þú ert með ráðherrann, hann er einn. Svo ertu með sýslumann, hann er einn. Svo ertu með starfsmennina og það er gólfið. Þú ert alltaf að mjókka píramídann. Það er verið að auka miðstýringuna. Valddreifingin sem er svo góð, herra forseti, þar sem ákvarðanir eru teknar svolítið dreifðara heldur en hjá einum manni, hjá einu embætti — ég tel hana vera betri leið í okkar samfélagi. Það er markvisst verið að fækka hliðsettum stjórnvöldum alla daga. Það er verið að tala um lögregluna, það er verið að tala um dómstólana, sýslumennina, skattinn og tollinn o.s.frv. Það er alltaf verið að gera þetta meira og meira miðstýrt, meira og meira á hendi einnar stofnunar, eins manns, forstöðumanns. Ég er á móti þessu. Af hverju? Í grunninn út af byggðastefnu, út af byggðasjónarmiðum. Í grunninn eru það byggðasjónarmið. Ég vil ekki sjá landið byggjast upp bara í Reykjavík og nágrenni. Ég vil að það byggist upp um allt land og að landsbyggðin sé ekki einhvers konar þiggjandi í þessu, alltaf stöðugt sem þiggjandi. Hvert fara hálaunastörfin? Þau fara auðvitað þangað þar sem aðalstöðvarnar eru. Hálaunastörfum mun fjölga á höfuðborgarsvæðinu og fækka úti á landi eins og maður er bara búinn að horfa upp á síðustu mörg árin. Hálaunastörfin dragast þangað og menntaða fólkið dregst alltaf að höfuðborgarsvæðinu. Þess vegna fara svona frumvörp í taugarnar á mér, það er kannski pínulítil tilfinningasemi hjá mér.
Svo er verið að tala um hagræðingu, áform um hagræðingu. Það kemur fram í frumvarpinu að markmið númer tvö sé að hámarka nýtingu þess fjármagns sem ráðstafað er. Ég set stórt spurningarmerki við það eins og kemur fram í áliti 3. minni hluta og er rökstutt með ítarlegum hætti. Ég ætla ekki að lesa það upp en ég tek undir það sem þar stendur. Ég hef miklar efasemdir um að það leiði til hagræðingar. Þótt sýslumönnum sé fækkað um átta og það komi einhver hagræðing á útgjöldum vegna þeirra þá mun sameinað embætti kalla eftir því að sjálfsögðu að það verði aðstoðarmannaher í kringum aðalstöðvarnar eins og við sjáum alltaf hreint, næstum án undantekninga. Ég tel ekki að það sé hagræðing eða peningaleg hagræðing af þessu. Það má vera einhvers konar starfsleg hagræðing, það má vera að það sé auðveldara að koma inn breytingum í kerfinu heldur en ef það væru níu aðilar sem þyrftu að taka inn breytingarnar sem gengi auðvitað misjafnlega og mishratt fyrir sig á hverjum stað og færi svona eftir persónum og leikendum. En það er bara eins og lífið er.
Ég ætlaði einnig að tala um ýmislegt annað, tíminn líður hratt. Núna þegar horfum við upp á það að landsbyggðin á í vök að verjast, við höfum heyrt um kílómetragjaldið sem kemur niður á landsbyggðinni, við höfum heyrt um veiðigjöldin sem koma mest niður á landsbyggðinni, við höfum talað um vörugjöld á bifreiðar sem koma hart niður á bílaleigum sem leigja bíla sem munu þá keyra styttri ferðir út á land. Það mun koma niður á ferðamannaiðnaði, sem er auðvitað nýsköpunin sem á sér stað úti á landi. Þetta mál er enn önnur hleðslan í þá hræðslu og mun gera landsbyggðinni erfiðara fyrir að vaxa og dafna. Ég tel að temprun valds séu einnig rök í þessu máli, fyrir því að hafa sýslumennina fleiri en færri, að valdið sé temprað, sé ekki fært á eina hendi heldur sé á hendi fleiri. Það sé í anda valddreifingar en ekki miðstýringar. Ég tel líka að sameining gæti orðið til þess að starfsmönnum muni fækka og útibúum muni fækka og ég tek undir með hv. þm. Jóni Gunnarssyni, ég heyrði það í hans ræðu, að auðvitað er það augljóst að ef útibúin eru ekki sett í lög, þ.e. ef staðsetning útibúa sýslumanns er ekki sett í lög, þá er mun einfaldara að draga saman þar eða hugsanlega hætta að hafa þau opin. Ég er hins vegar talsmaður þess að við eigum ekki að setja alla staði þar inn. Við verðum að hafa borð fyrir báru ef einhverjir staðir eru það litlir að þeir þurfi kannski ekki þessa þjónustu. Auðvitað á þetta ekki að vera bara til þess að hafa eitthvað heldur verður starfsemi að vera nægilega mikil til að það sé hagkvæmt að reka útibú á minni stöðum. En það er alltaf smekksatriði og spurning um markmið. — Ég ætla að láta þetta duga í dag.