sýslumaður.
Virðulegur forseti. Ég er kominn hér upp í þennan stól enn einu sinni til þess að ræða hér frumvarp til laga um sýslumann, um sameiningu sýslumannsembætta, mál sem ég hef gagnrýnt og er algerlega mótfallinn. Ég hef ekki breytt um skoðun í þetta skiptið, í þessari atrennu, en ég hef áhyggjur af því að þetta muni verða að lögum í þetta skipti og ég verði undir ásamt mörgum öðrum sem deila sömu áhyggjum og ég varðandi þetta mál. Það hefur verið áhugavert að hlusta á umræðurnar í dag, margt áhugavert komið fram, og ég get tekið undir með mörgum sem hér hafa talað. En mig langar að lýsa aðeins afstöðu minni í þessu máli og hvað það er í því sem ég hef áhyggjur af og það er ansi margt.
Virðulegur forseti. Fyrir okkur sem höfum starfað í sveitarstjórnum úti á landi og fyrir okkur landsbyggðarþingmennina, fyrir okkur sem höfum verið í þeirri stöðu að reyna að verja okkar byggðir og verja okkar svæði, er það alveg ljóst að sú varnarbarátta hefur gengið misjafnlega og illa að mörgu leyti þegar kemur að opinberum störfum. Ef maður fer hringinn í kringum landið og skoðar þær opinberu stofnanir sem hafa staðið hvað sterkast og staðið af sér þennan mótbyr, þá eru það þær stofnanir sem eru með forstöðumennina heima í héraði, stofnanir þar sem forstöðumaðurinn, sá sem tekur ákvarðanirnar, hefur fjárveitingavaldið, er staðsettur heima í héraði. Það eru þær stofnanir sem hafa best staðið af sér storminn. Í allt of mörgum tilfellum þar sem ekki er um þetta að ræða sjáum við að störfin leka í burtu, eitt og eitt, þangað til þau eru orðin svo fá að rökin eru þau að það sé ekki lengur hægt að gera út stofnunina, það er ekki talið fýsilegt og henni er lokað.
Ég ætla bara að minna þingheim á það að margar af þessum stofnunum voru einmitt fluttar á þann sama stað af þinginu eða ráðherrum sem í góðri trú og af góðum hug ákváðu að styrkja starfsemi á einhverjum stað úti á landi eða stöðum úti á landi, ákváðu að færa stofnanir að hluta til til að styrkja atvinnulíf á viðkomandi svæði sem átti eftir atvikum undir högg að sækja. Og hvað gerist? Jú, virðulegur forseti, svo tekur raunveruleikinn við og raunveruleikinn er sá að togkraftur höfuðborgarsvæðisins er ægilegur. Hann er ægilegur. Því miður þá er það staðan í raunheimum að við, eins og ég kom inn á, sem höfum staðið í þessari varnarbaráttu fyrir landsbyggðina höfum því miður allt of oft horft á viðlíka dæmi. Það er það sem ég óttast, virðulegur forseti, að við séum að fara að horfa upp á enn eitt dæmið hvað þetta varðar. Og þó að ég ætli þeim sem leggja þetta frumvarp fram ekkert nema gott þá get ég engan veginn fallist á þær röksemdir og þau sjónarmið sem koma hér fram einfaldlega vegna þess að ég hef ekki trú á því að það gangi eftir.
Ég ætla bara að minna á að sýslumenn eru fulltrúar ríkis í héraði. Þetta eru fulltrúar ríkisins í héraði. Þessi starfsemi skiptir máli. Það að hafa sýslumann sem fulltrúa ríkisins í héraði á heimasvæðinu skiptir þá sem þar eru máli. Það skiptir máli hvort þetta er einhver starfsmaður, fulltrúi sýslumanns eða sýslumaður sjálfur, á því er reginmunur. Það þarf ekki annað, virðulegur forseti, máli mínu til stuðnings en bara að lesa umsagnir þeirra aðila sem hafa staðið eða standa í sömu sporum og sá sem hér stendur í því verkefni að reyna að verja sín svæði og reyna að verja störf og þjónustu í heimabyggð. Það er Fjórðungssamband Vestfjarða, það er Samband íslenskra sveitarfélaga, Samband sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Samband sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Byggðastofnun, svo nokkur dæmi séu tekin. Þessir aðilar deila þessum áhyggjum sem ég er að lýsa hér. Af hverju? Jú, vegna þess að þetta er fólk sem er búið að vera í nákvæmlega þeirri stöðu og ég lýsti hér áðan og hefur horft í allt of mörgum tilfellum upp á nákvæmlega þetta gerast, að störfin leka í burtu.
Í því frumvarpi sem var til umræðu á síðasta þingi og í þeirri breytingartillögu sem hv. þm. Jón Gunnarsson leggur hér til eru starfsstöðvarnar festar í sessi. Það er þó skömminni skárra, virðulegur forseti. Af hverju segi ég það? Jú, ég ætla að taka hér sýslumanninn á Blönduósi sem dæmi. Ég held að það séu um 30 starfsmenn sem starfa á sýslumannsskrifstofunni á Blönduósi. Þetta er kjarnastarfsemi á Blönduósi, þetta er einn lykilþáttur í atvinnustarfsemi á Blönduósi, starfsemi sýslumannsins. Þetta eru góð og vel launuð störf. Þetta er sambland af faglærðu og ófaglærðu fólki. Þarna hefur fólk flust inn á svæðið sérstaklega til að starfa þarna. Þetta skiptir verulegu máli fyrir Húnavatnssýslu, Norðurland vestra og Blönduós. Það er engin fullvissa í þessu frumvarpi um að þessi starfsemi verði þar áfram eftir tíu ár, engin. Hún var það þó í hinu frumvarpinu því það þurfti þá alla vega að breyta lögum til þess. Hér er valdið algjörlega flutt til ráðherrans, algerlega, og þingið er klippt út úr þeirri ákvarðanatöku. Það er ákveðinn varnagli að hafa það fast í lögum hvar staðsetning embætta eigi að vera, líkt og var gert þegar lögunum var breytt 2015 og það var sett inn í lögin hvar starfsstöðvar lögreglustjórans og sýslumannsins áttu að vera við aðskilnaðinn þá. Það skipti gríðarlegu máli.
Mig langar líka að taka undir það sem hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson var að tala hér um áðan varðandi kjarnann og fara aðeins inn í það. Þó að það sé nú kannski ekki beint tengt þessu máli þá er það þó þannig að ég deili algerlega þeirri skoðun með hv. þingmanni að skoða tækifærin til að skapa sterk þjónustusvæði úti á landi. Ég held að við ættum miklu frekar að horfa í þá áttina og reyna að samræma svæðin. Við erum með landshlutasvæði sveitarfélaganna sem eru ákveðin. Síðan ertu með löggæsluumdæmin sem eru önnur. Þú ert með heilbrigðisumdæmin sem eru síðan eitt enn og svo ertu með heilbrigðisfulltrúana sem eru annað, svo ég taki dæmi. Ég held að það væri miklu nærtækara að reyna að búa til öflug svæði með öflugum þjónustustofnunum innan hvers kjarna í nærsamfélaginu og tryggja þannig að opinber þjónusta eflist frekar en að það sé hætt við því að hún veikist. En vissan, því miður, er engin.
Ég verð að segja að ég hef líka áhyggjur af því, og er þegar búinn að ræða það hér í þessum ræðustól, á hvaða vegferð ríkisstjórnin er gagnvart landsbyggðinni. Að mínu mati er það ekki byggðastefna, það er ekki landsbyggðarstefna að segja: Við ætlum að styrkja landsbyggðina, við erum fólkið sem ætlar að efla og styrkja byggðir landsins og við ætlum að byrja á því reyndar að taka af ykkur sýslumanninn og gera þetta miðlægt, þið fáið þjónustuna einhvers staðar annars staðar frá, en við ætlum að efla þetta. Hvernig? Ja, það á reyndar eftir að koma fram seinna. Verða starfsstöðvarnar áfram? Nei, það er ekki ljóst, við ætlum alla vega ekki að leggja þær niður. Þetta er ekki góð nálgun, virðulegur forseti.
Ég nefni hérna veiðigjöldin, vörugjöldin, kílómetragjöldin. Ég nefni framhaldsskólana þar sem á að fara að afleggja rektora eða skólameistara og taka fjármagnið af skólunum og segja svo: Þetta á að styrkja landsbyggðina. Með nákvæmlega sömu rökum og ég er á móti þessu frumvarpi þá er ég á móti vegna þess að þetta mun ekki gera neitt annað, virðulegur forseti, en að veikja svæðin. Við getum talað um heilbrigðisfulltrúana, við getum talað um að fara að jafna atkvæðisvægi, við getum talað um breytingar á búvörulögum, lækkun til byggðamála í fjárlögum. Svona get ég haldið áfram og áfram. Þetta er staðan sem blasir við landsbyggðinni í dag. Þetta eru áskoranirnar sem ég fæ að heyra þegar ég fer út í mitt kjördæmi og er spurður: Hvað ætlið þið að gera í þessum málum? Ætlið þið að láta þetta yfir okkur ganga?
Hér segi ég nei. Ég segi nei. Og ég verð að segja eitt, virðulegur forseti. Mér finnst það alveg afskaplega sérstakt í frumvarpinu og ef ég man rétt þá er tekið á því í nefndaráliti meiri hlutans, þar sem segir, með leyfi forseta, á bls. 4: í nefndaráliti meiri hlutans: „Líkt og rakið er í greinargerð með frumvarpinu er fyrirhugað að fjölga þeim verkefnum sem sýslumenn fara með en það þarfnast nánari útfærslu með lögum, reglugerðum …“ Góðar fyrirætlanir. En hvað eru menn að gera raunverulega? Ég er hér með frumvarp, virðulegur forseti, frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta, gjöld o.fl. (tolla, leigutekjur o.fl.) sem er nú til umræðu í þinginu í efnahags- og viðskiptanefnd. Í kafla um álagningu og innheimtu áfengis-, tóbaks- og nikótíngjalds og auknar kröfur til tollfrjálsra verslana segir, með leyfi forseta:
„Um er að ræða nýmæli því að samkvæmt gildandi lögum er innheimtan í höndum allra innheimtumanna ríkisins, þ.e. ríkisskattstjóra í umdæmi sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu og sýslumanna í öðrum umdæmum, sbr. 2. mgr. 3. gr. laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda, nr. 150/2019. Markmiðið með að færa innheimtu gjalda samkvæmt lögum um gjald af áfengi, tóbaki, nikótíni o.fl., nr. 96/1995, alfarið til ríkisskattstjóra …“
Við erum sem sagt að ræða hér og fara að samþykkja frumvarp um að færa verkefni frá sýslumönnum í miðlæga stofnun á sama tíma og við erum með frumvarp hér sem segir: Já, við ætlum að færa verkefni til sýslumanna. Það er ekki einu sinni búið að skoða þetta og samþykkja hvorugt en menn eru byrjaðir að pota í þetta.
Virðulegur forseti. Þetta eru þeir raunheimar sem við sem búum úti á landi búum í, því miður. Svona gerist þetta. Ég endurtek að ég ætla því ágæta fólki sem er í ríkisstjórn og er hér á þingi það ekki að það sé með einhvern slæman ásetning í þessu máli, ég þekki það of vel til þess, en þetta gengur ekki upp, virðulegur forseti. Þetta mun ekki ganga upp. Í umræðunni heyrum við að það er talað um að hér séu örstofnanir, það þurfi að sameina örstofnanir. Aftur ætla ég að nota sýslumanninn á Blönduósi sem dæmi af því ég þekki það ágætlega, 30 manna stofnun á Blönduósi. Það getur vel verið að það sé örstofnun í Reykjavík eða á höfuðborgarsvæðinu en þetta er risastofnun á Blönduósi.
Varðandi þessar stafrænu lausnir, virðulegi forseti, þá eru sýslumennirnir bara mjög framarlega í þeim og ég hef fulla trú á því að þeir með auknu samtali — ef það þarf að breyta lögum til þess að fá sýslumenn til að vinna betur saman þá held ég að það séu bara fáar stofnanir á landinu sem eru lengra komnar í stafrænum lausnum heldur en sýslumenn, þannig að það eru alveg til aðferðir. Það eru alveg til leiðir til þess að ná þessum markmiðum án þess að fara þá leið sem hér er lögð fram, algjörlega.
Ég ætla að nota, virðulegur forseti, þá klisju sem hefur nú verið notuð í dag og við eigum örugglega eftir að nota hér aftur. Sporin hræða, virðulegur forseti, í þessu máli. Ég verð að segja að ég sakna þingmanna landsbyggðarinnar úr meiri hlutanum hér í þessari umræðu þó að ég horfi hér á hv. þm. Víði Reynisson sem á heiður skilið fyrir að hafa setið hér og hlustað á alla umræðuna og tekið þátt í henni, hann á hól skilið fyrir það, og eins hefur hv. þm. Grímur Grímsson, sem er framsögumaður þessa máls, verið hér. En aðra hef ég ekki séð og mér finnst það mjög sérstakt vegna þess að ég man eftir þessari umræðu þegar hún var hér á síðasta þingi. Þá höfðu nú þingmenn úr þessum flokkum töluvert um það mál að segja. Ég hefði haft mjög gaman af því og ég er viss um að bæði þingheimur og þjóðin öll hefði haft gaman af því að fá að hlusta á sjónarmið og rök landsbyggðarþingmanna meiri hlutans í þessu máli og heyra hvort þeir deili á engan hátt áhyggjum mínum og okkar sem hér höfum talað, áhyggjum sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Vestfjarðastofu, Byggðastofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Þótt ég gæti talað um þetta mál hér í allt kvöld þá held ég að ég ætli að láta gott heita, en þó er eitt sem mig langar að minnast á sem hefur verið rætt hér í dag, sem ég verð að gera athugasemdir við. Það fer alveg afskaplega í taugarnar á mér þegar menn nota það sem rök einhvern veginn fyrir sameiningu stofnana að það sé svo erfitt að fá hæft starfsfólk úti á landi og það sé svo erfitt að fá fagmenntað starfsfólk til starfa úti á landi. Það var nú þannig, virðulegur forseti, að síðast þegar ég tók umræðu um slíkt þá var verið að færa brunamálasvið til HMS og þá voru rökin einmitt þessi, að það væri ekki hægt vegna þess að það myndi enginn sækja um, það væri ekki hægt að hafa svona sérhæfða starfsemi úti á landi, það myndi enginn sækja um, enginn. Þetta var sagt ítrekað. En menn héldu haus og kláruðu það verkefni. Ég held að það hafi verið á þriðja tug manna sem sótti um störf og þessi starfsemi gengur afskaplega vel og er mjög farsæl. Það eru engar óánægjuraddir uppi og hefur ekki verið gagnrýnt að það ágæta starfsfólk sem þar starfar sé ekki faglegt eða ekki með menntun við hæfi.
Þetta er byggðamál, virðulegur forseti. Þetta er risastórt byggðamál. Ég skora á meiri hlutann (Forseti hringir.) hér á þingi að draga þetta mál til baka, draga andann og hlusta á landsbyggðina og hlusta á þau sjónarmið sem hafa komið fram. Ég held að þetta fólk eigi það skilið.