157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

sameining Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

256. mál
[18:28]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Markmiðið með frumvarpinu er að einfalda stjórnsýslu, styðja enn betur við faglega skipulagsgerð og hagræða í ríkisrekstri. Í frumvarpinu er lagt til að verkefni Skipulagsstofnunar verði flutt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, hér eftir HMS, og Skipulagsstofnun samhliða því lögð niður. Heiti HMS eftir flutning verkefnanna verði Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

Í frumvarpinu eru gerðar tillögur að breytingum á skipulagslögum og lögum um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun auk fleiri laga þar sem vísað er í stofnanirnar. Nafn sameinaðrar stofnunar mun verða Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun og verður öllu starfsfólki sem starfar hjá Skipulagsstofnun boðið starf hjá HMS. Tryggt verður að starfsfólk haldi áunnum starfsréttindum við sameininguna, sbr. 4. mgr. 67. gr. frumvarpsins.

Með frumvarpi þessu skapast einnig tækifæri til að bæta þjónustu á landsbyggðinni þar sem stofnunin mun hafa starfsstöðvar á þremur stöðum á landinu; í Reykjavík, á Akureyri og á Sauðárkróki. Samlegð í verkefnum mun þannig hafa jákvæð áhrif á aðgengi fólks og sveitarfélaga á Norðurlandi að þjónustu sem tengist skipulagsmálum. Jafnframt er markmiðið að auka bolmagn hins opinbera á sviði skipulagsmála með samlegðaráhrifum af rekstri málaflokkanna í stærri stofnun og samþættingu verkefna. Þá er ætlunin að mæta auknum kröfum um betri heildarsýn yfir þróun byggðar, sjálfbæra landnotkun, húsnæðisþörf og nýtingu auðlinda.

Skipulagsstofnun og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun halda utan um og veita aðgengi að margs konar upplýsingum um skipulag annars vegar og skráningu mannvirkja og fasteigna hins vegar og eru þessi kerfi ekki tengd í dag. Með sameiningunni skapast tækifæri til að samþætta þessar upplýsingar og bjóða upp á eina stafræna lausn sem fylgir uppbyggingu allt frá skipulagsáætlun yfir í afmörkun lands, útgáfu byggingarleyfis og til skráningar mannvirkja. Mun það hafa í för með sér veruleg tækifæri og einfalda hagaðilum og almenningi að fá yfirsýn yfir fyrirhugaðar framkvæmdir í landinu og búa til tækifæri til birtingar betri gagna og bæta greiningar á málefnasviðinu. Samhliða því myndast tækifæri til að stytta afgreiðslutíma mála og ákvarðanataka framkvæmdaraðila, almennings og stjórnvalda verður upplýstari og skilvirkari. Allt þetta leiðir til verulegrar einföldunar og bættrar þjónustu við alla. Sameining verkefna þessara tveggja stofnana er í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um að hagræða og einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir.

Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er strax gert ráð fyrir 30 millj. kr. sparnaði á ársgrundvelli með því að færa starfsemi Skipulagsstofnunar í húsnæði HMS í Borgartúni. Þá megi gera ráð fyrir hagræðingu í innri þjónustu sem geti numið 50 millj. kr. á ári þegar fram líða stundir. Til viðbótar má gera ráð fyrir talsverðum samlegðaráhrifum vegna reksturs upplýsingakerfa sem mun koma málefnasviðinu mjög til góða. Þær framfarir sem því fylgja muni auka enn frekar skilvirkni og einfalda stjórnsýslu. Með því að sameina verkefni Skipulagsstofnunar og HMS undir einum hatti verði til öflugri stofnun sem hefur getu til að vinna að þeim kerfisbreytingum í húsnæðismálum sem ríkisstjórnin ætlar að ráðast í. Þannig næst fram einföldun stjórnsýslu, skipulags og mannvirkjamála, enda verður allur ferillinn frá stofnun lóða, skipulag þeirra og þar til komið er fullbúið mannvirki, tilbúið til notkunar, hjá einni stofnun gagnvart sveitarfélögum og fasteignaeigendum.

Drög að frumvarpinu birtust í samráðsgátt stjórnvalda þann 19. september síðastliðinn. Flestar umsagnir voru jákvæðar þar sem tekið var undir markmiðin með sameiningunni og þeirri samlegð sem myndi myndast í sameinaðri öflugri stofnun. Þó voru einhverjar umsagnir sem lýstu áhyggjum af því að áhersla á faglega skipulagsgerð og sjálfbærni myndi minnka yrði frumvarpið samþykkt. Af því tilefni er rétt að árétta að meginmarkmiðið er einmitt að styðja enn betur við faglega skipulagsgerð með því að nýta það bolmagn sem er til staðar hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Með því að samnýta ýmiss konar stoðþjónustu, svo sem hugbúnaðar- og kerfisþróun, er hægt að hraða stafrænni umbreytingu auk þess sem hægt er að samnýta vinnu við útgáfu leiðbeininga og samþætta ferla og verklag.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins. Ég tel að sú sameining sem frumvarp þetta snýr að muni auka til muna getu hins opinbera á sviði húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsmála. Þetta er mikið umbótamál sem mun skila raunverulegum ávinningi fyrir ríkisfjármálin og jafnframt efla stjórnsýsluna og bæta þá þjónustu sem almenningur sækir til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. velferðarnefndar og 2. umræðu.