157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

sameining Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

256. mál
[18:34]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra fyrir framsöguna. Ég er sammála henni um að það sé mikilvægt að þær stofnanir sem við ætlum hlutverk í íslensku samfélagi séu sem stærstar og öflugastar. Það skiptir máli og ég er sammála því að þetta gæti verið skynsamleg niðurstaða varðandi alla vega það sem snýr að kostnaðinum. Ég er líka sammála því að stofnunin muni mögulega eflast við sameininguna.

Ég er með tvö atriði sem ég vildi nefna, og hef reyndar nefnt áður við hæstv. ráðherra, og það er varðandi skipulagið á húsnæðismálunum og í rauninni skipulagið á skipulagsmálum. Ég hef verið þeirrar skoðunar að þetta ætti fremur heima í innviðaráðuneytinu og mig langar til að færa þá þau rök fyrir því að að stærstur hluti af verkefnum t.d. Skipulagsstofnunar snýr að því að horfa á skipulag um allt land og ekki bara húsnæði heldur í rauninni mjög mörgu öðru og kannski of mörgu til að hægt sé að telja það upp hér. Hvernig sér ráðherra þetta fyrir sér? Nú veit ég að þetta var hugsað þannig að þetta yrði mögulega tímabundið verkefni. Sér þá ráðherrann fyrir sér að þessu verði mögulega breytt aftur? Svo langar mig þá í framhaldinu að velta því upp við ráðherrann af hverju var valið að senda erindið til velferðarnefndar en ekki til umhverfis- og samgöngunefndar.