sameining Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og líka fyrir það að við skulum vera sammála um hagræðingu og hagkvæmni þess að eiga stórar öflugar stofnanir, sérstaklega þegar svona sterk samlegð er á milli stofnana eins og hjá HMS og Skipulagsstofnun. Ég hef ekki enn þá heyrt það sem hv. þingmaður nefnir, að þetta sé einhver tímabundin aðgerð, engan veginn. Hins vegar get ég sagt, og það er gleðilegt, að það er mikill vilji hjá Skipulagsstofnun og HMS; þau hlakka mikið til að vinna saman. Þau eru búin að vera tilbúin síðan í vor og það er í raun verið að ganga hér frá formlegri samlegð þannig að þetta gæti raungerst. Við hlökkum til að sjá niðurstöðuna úr því.
Hvers vegna er þessu vísað til hv. velferðarnefndar í staðinn fyrir að fara í umhverfis- og skipulagsnefnd? Það er nú þannig að út af húsnæðisþættinum hefur Húsnæðis- og mannvirkjastofnun verið undir velferðarnefnd. Ég skil spurninguna mjög vel og það er einmitt verið að velta þessu upp núna hér á þingskrifstofunum, hvort þetta eigi frekar heima annars staðar. Nú er Skipulagsstofnun, sem er mun minni í sniðum, að renna inn í Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, stærra batteríið, og sameinast þar. Þannig að a.m.k. enn sem komið er þá er þessi staða svona og engan veginn öðruvísi. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur til þessa heyrt undir velferðarnefnd ef einhver mál koma sem lúta að henni.