157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

sameining Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

256. mál
[18:38]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég heyrði á svari ráðherra varðandi þetta sem ég kallaði tímabundna ráðstöfun að ég hef kannski ekki náð að orða spurninguna nægilega vel. Málið snýst um það að ég lít svo á að það hafi verið ákveðið að fara í þetta skipulag þannig að skipulagsmálin færu inn til félagsmálaráðuneytisins og það væri í rauninni hugsað í tengslum við — og ég hef reyndar fengið það staðfest frá ráðherra í svörum — og sneri fyrst og fremst að því að það ætti að gera stórfellt húsnæðisátak. Það væri verið að horfa á t.d. félagslegt húsnæði og það væri ástæðan fyrir því að það hefði verið ákveðið að flytja málaflokkinn yfir til félagsmálaráðuneytisins, sem mér fannst kannski ekki passa og tel eðlilegra að þetta ætti heima í innviðaráðuneytinu. Þess vegna spurði ég ráðherrann hvort hann sæi það fyrir sér að þetta væri tímabundin ráðstöfun; að þegar húsnæðisátakinu lyki þá myndi mögulega þessi hluti starfsemi ráðuneytisins flytjast aftur til innviðaráðuneytisins. Það var spurning mín til ráðherrans.