157. löggjafarþing — 34. fundur, 18. nóv. 2025.
sameining Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
256. mál
Virðulegi forseti. Nei, hv. þingmaður, það er ekkert á teikniborðinu sem bendir til þess að þetta sé að fara aftur í innviðaráðuneytið, a.m.k. eins og staðan er núna. Við erum enn að ráðast í svo mikið og öflugt átak í uppbyggingu á húsnæði og á meðan svo er þá er engin ástæða til þess að líta eitthvað lengra. Eins og staðan er núna þá held ég að þessum málaflokki sé virkilega vel fyrir komið í mínum faðmi.