Störf þingsins.
Frú forseti. Ég ætla einnig að ræða vaxtalækkun Seðlabankans og ég ætla að fagna þessu skrefi þó að það sé lítið og vona svo sannarlega að það sé mikils vísir þó að það sé í smæsta lagi. Það hefur verið ákall eftir vaxtalækkun í samfélaginu. Það hefur komið frá Samtökum iðnaðarins og svo hefur nánast komið neyðaróp frá Hagsmunasamtökum heimilanna. Ef farið er yfir vexti í Evrópu kemur í ljós að verðbólgan á Íslandi á sér hliðstæðu á evrusvæðinu sjálfu. Verðbólgan er svipuð hér og í Litáen, Austurríki og hún er jafnvel enn hærri í Eistlandi og Lettlandi. Finna má fleiri hliðstæður utan evrusvæðisins, m.a. í Bretlandi og öðrum vestrænum ríkjum, þar sem verðbólgan er bara á svipuðu róli og hér. En í engu þessara landa eru stýrivextir með þeim hætti eins og þeir eru hér, stýrivextir eru um 70% hærri heldur en verðlagsþróun. Það er nauðsynlegt að taka það til athugunar og kanna áhrif þessara ofurvaxta með opnum huga. Og kanna það: Er þessi yfirtrompun Seðlabankans að skila tilætluðum árangri? Það er ljóst að fyrirtæki sem eru að greiða 12% vexti þurfa að velta kostnaðinum með einhverjum hætti út í verðlagið og það ýtir undir óstöðugleika og býr til óvissu um efnahagsþróun.
Í lokin er rétt að minna á vandaðar tillögur ríkisstjórnarinnar hvað varðar ríkisfjármálin og heimilispakkann. Þetta eru allt tillögur sem munu stuðla að því að við náum jafnvægi hér og ættu, ef allt væri tekið til, að stuðla að hraðri vaxtalækkun og bæta hag heimila og íslenskra fyrirtækja.