157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[15:16]
Horfa

Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Skóli er ekki geymsla sem kennir börnum bók- og tölustafi heldur hluti af því þorpi sem elur upp barn. Í starfi mínu sem barnasálfræðingur voru það allra helst skólar sem bentu fyrst á áhyggjur af hegðun og líðan barna. Þegar kemur að því að hjálpa einstökum börnum skiptir samstarf við skóla ekki síður máli en samstarf við foreldra. Því miður er tilhneiging til að tala niður menntakerfið okkar og jafnvel hörfa aftur til fortíðar en naflaskoðunar er vissulega þörf.

Í dag vil ég vekja máls á tvennu sem veldur mér áhyggjum. Annars vegar starfsumhverfi kennara en starfið er gefandi og krefjandi í senn því við ætlumst til þess að kennarar séu ekki bara kennarar heldur einnig félagsráðgjafar, sálfræðingar, læknar, túlkar og jafnvel tæknimenn. Úr þessu þarf að bæta og ég hef kallað skriflega eftir svörum frá hæstv. ráðherra um aðgerðir til að bæta starfsumhverfið en einnig hvort þurfi ekki að þarfagreina fjölbreyttari aðkomu fagstétta, annarra en kennara, innan menntakerfisins.

Forseti. Ég hef líka áhyggjur af skorti á virðingu fyrir skólaskyldunni. Íslensku skólaárin eru með þeim styttri sem þekkjast í kringum okkur. Í samtölum við kennara hef ég heyrt að algengt sé að foreldrar fari í löng frí á skólatíma og sinni ekki námi barnsins á meðan. Börnin dragast aftur úr og erfitt er fyrir kennara að þurfa að koma þeim á sporið og heill bekkur er kominn langt fram úr og eftir situr barn sem lærir ekki stafkrók um atviksorð vegna Tene-ferðar. Sum sveitarfélög hafa nú þegar gripið til aðgerða vegna vandamáls sem mér skilst að sé vaxandi en betur má ef duga skal. Við þurfum að sjá svart á hvítu hve mikið börnin okkar eru að missa úr skóla vegna leyfistöku vegna ferðalaga. Því hef ég einnig óskað eftir því að hæstv. ráðherra taki saman slíka tölfræði og hvort þörf sé á aðgerðum. Við þurfum að senda foreldrum og börnum skýr skilaboð um að menntun skipti máli og okkur beri að virða skólaskylduna.