Störf þingsins.
Frú forseti. Frystum samninga, stoppum atkvæðagreiðslur, ótímabundið frost. Þetta voru orð sem ómuðu um þingsalinn í gær, orð frá stjórnarandstöðu sem telur hagsmunum okkar best borgið með því að vera lítil og óáreiðanleg í samskiptum við okkar helstu vina- og viðskiptaþjóðir. En hvert ætla þau að snúa sér? Til Bandaríkjanna, lands sem skellti 15% tollum á okkur án fyrirvara eða samtals? Eða var það Rússland eða Kína? Þetta er gamaldags hræðsluáróður sem talar niður til samfélags sem er best þegar það er opið, djarft og framsækið. Fá ríki ef einhver hafa hagnast jafn mikið og Ísland á því opna og frjálslynda kerfi sem reis úr rústum seinni heimsstyrjaldar og hefur tryggt okkur aðgengi að mörkuðum, tækifærum og samstarfi sem við hefðum annars aldrei haft. Nú er svo komið að 70% af okkar útflutningi fer til EES-landa. Heimurinn er breyttur, stórveldin mynda tollablokkir og við verðum að stíga ákveðið til jarðar og spyrja: Hvar ætlum við að staðsetja okkur í þessari nýju heimsmynd? Að tala fyrir einangrun, tortryggni eða útilokun er skaðleg stefna. Hún vinnur gegn hagsmunum Íslands, gegn atvinnulífi okkar, gegn öryggi okkar og gegn framtíðarmöguleikum okkar á alþjóðasviðinu.
Frú forseti. Ég er stoltur Íslendingur, stoltur af því samfélagi sem við höfum byggt og stoltur af því að vilja gera það enn betra. Við verndum ekki hagsmuni Íslands með því að gera það lítið, lokað eða hrætt. Við verndum þá með því að vera stórhuga, taka pláss, vera virkir og traustir þátttakendur í alþjóðasamfélaginu og láta opna, frjálslynda og sterka rödd Íslands heyrast hátt og skýrt því aðeins þannig tryggjum við framtíð sem er verðug þeirrar þjóðar sem við viljum vera.