157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[15:23]
Horfa

Ester Halldórsdóttir (V):

Frú forseti. Orkuöryggi er ein af grunnstoðum samfélagsins og snertir bæði velferð einstaklinga og samfélagsins í heild og er jafnframt undirstaða atvinnulífsins. Ákveðin svæði á Íslandi hafa búið við orkuskort um langt skeið, sem hefur haft neikvæð áhrif á lífsgæði íbúa og atvinnustarfsemi. Það er einstaklega mikilvægt að tryggja að atvinnulíf á landsbyggðinni blómstri til að gera búsetu þar vænlega. Húshitun á þeim svæðum sem teljast til kaldra svæða hefur hingað til verið bæði dýr og óhagkvæm en vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar síðustu mánuði og átaks í nýtingu jarðhita á þessum lághitasvæðum hefur nú opnast möguleiki til hagkvæmrar nýtingar jarðhita á þessum svæðum. Á meginlandi Evrópu hefur verið mikil framþróun í nýtingu og þróun lághita. Ísland hefur ekki fylgt með í þessari vegferð þar sem hér hefur verið einblínt á nýtingu háhita.

Forseti. Þarna erum við að missa af tækifæri til að taka þátt í alþjóðlegum rannsóknar- og þróunarverkefnum og læra af þeim Evrópulöndum sem eru að nýta lághita til húshitunar með varmadælum inn á hitaveitukerfi eða til að geyma hita neðan jarðar til nýtingar á veturna. Evrópskt samstarf á sviði orkumála er okkur gríðarlega mikilvægt en við höfum notið góðs af styrkjum frá Evrópusambandinu og höfum komið okkar þekkingu og tækni á framfæri erlendis og lært af öðrum þjóðum. Höldum áfram að styðja þessa vegferð og tryggja orkuöryggi fyrir alla íbúa landsins.