Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Enn hefur hæstv. innviðaráðherra Eyjólfur Ármannsson ekki birt reglugerð um línuívilnun, skel- og rækjubætur eða byggðakvóta þrátt fyrir að lög kveði á um að það skuli gert fyrir hvert fiskveiðiár. Þetta er til mikilla vansa fyrir ráðherrann og ríkisstjórnina og skapar mikla óvissu, sérstaklega fyrir litlar útgerðir sem treysta á þetta kerfi og er í raun grunnur að rekstri þeirra og veldur m.a. því að menn hugsa um sinn hag og selja sinn rekstur. Verkstjórnin virðist leggja sig alla fram um að auka á samþjöppun í sjávarútvegi. Umboðsmaður Alþingis reifaði í áliti sínu um sambærilegt mál:
„Í samræmi við þetta kunna stjórnvöld að þurfa að gæta sérstaklega að hagsmunum þeirra sem slík breyting bitnar á. Séu slíkar breytingar verulega íþyngjandi gagnvart borgurunum með tilliti til fyrri stjórnsýsluframkvæmdar verða stjórnvöld þannig almennt að kynna breytinguna fyrir fram með skýrum og glöggum hætti og nægjanlegum fyrirvara þannig að þeir aðilar sem málið snertir hafi raunhæft tækifæri til að gera viðeigandi ráðstafanir og bregðast við breyttri framkvæmd. Sérstaklega á þetta við ef hin breytta framkvæmd, og ég undirstrika án þess að viðkomandi lagareglu hafi verið breytt, leiðir til þess að breytt er verulega með íþyngjandi hætti skilyrðum fyrir því að njóta tiltekinnar fyrirgreiðslu eða réttinda samkvæmt þeim reglum og framkvæmd sem stjórnvald hefur viðhaft eða slík fyrirgreiðsla eða réttindi eru alfarið felld niður.“
Þetta er úr áliti umboðsmanns Alþingis, virðulegur forseti. Það reyndi einnig á þessi réttindi og lögmætar væntingar í hæstaréttardómi 151/2010. Þar var sagt:
„Ganga verður út frá því að hafi stjórnsýsluframkvæmd lengi tíðkast og almennt verið kunn geti stjórnvald ekki breytt henni svo að íþyngjandi sé gagnvart almenningi á þeim grunni einum að málefnalegar ástæður búi þar að baki, heldur verði að taka slíka ákvörðun á formlegan hátt og kynna hana þannig að þeir, sem breytingin varðar, geti gætt hagsmuna sinna.“
Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra er lögfræðingur. Hann gerir sér sennilega grein fyrir því að hann er að brjóta lög en það er svo sem ekki í fyrsta skipti sem það er á borði hjá þessari ríkisstjórn. Það er til mikils vansa að þetta skuli vera með þessum hætti og er stórhættulegt. Ég hef núna ítrekað óskað eftir því (Forseti hringir.) að ráðherra komi fyrir atvinnuveganefnd til að gera grein fyrir sínu máli. Einnig hef ég óskað eftir því að lögfræðingar sem unnu þetta lögfræðiálit (Forseti hringir.) sem liggur til grundvallar, og er komið inn á í grein í Vísi í gær hjá Örvari Marteinssyni smábátaútgerðarmanni, verði boðaðir á fund nefndarinnar til að gera grein fyrir sínu máli.