157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[15:35]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Mig langar til að koma aðeins inn á þetta mál, þennan atburð sem varð hér í gær og hefur verið ræddur í þingsal og alls staðar í samfélaginu, þegar einhliða ákvörðun var tekin af hálfu ESB um að setja tolla á kísilmálm frá Íslandi. Það blasir við að samband okkar við ESB er gjörbreytt frá þessari stundu. Þessi ákvörðun er í raun skemmdarverk. Þessi nýja staða vekur upp margar spurningar, ekki síst: Hvað verður það næst? Hvaða iðnað eða útflutning mun ESB næst setja tolla á? Nú eru samskiptin við ESB í miklu uppnámi og gríðarlegir hagsmunir eru undir. Öryggið og fyrirsjáanleikinn er ekki lengur fyrir hendi og það var svo sem ekki á það bætandi í því efnahagsástandi sem nú ríkir. Ég spyr því: Hvernig voru íslenskir ráðamenn, sem hafa verið í miklum samskiptum við helstu forystumenn ESB undanfarna mánuði, að beita sér? Hvernig voru þessi mál t.d. rædd í sumar þegar forseti framkvæmdastjórnar ESB, Ursula von der Leyen, kom hingað í mikla hátíðarheimsókn og mikið var gert úr þeim viðburði?

Ákvörðun ESB er fullkominn trúnaðarbrestur og alger forsendubrestur fyrir frekara samstarfi. Forystumenn ríkisstjórnar Íslands hafa enn ekki sagt okkur eða lýst því yfir hver viðbrögðin við þessari stöðu hafi verið frá því í gær heldur látið nægja að ýja að því að þessir atburðir séu enn frekari ástæða til að ganga í bandalagið. Það er strax farin af stað hér ódýr slagorðapólitík um að þeir sem tali gegn þessu, vari við þessu ástandi og tali gegn ESB séu að stunda gamaldags hræðsluáróður. Þannig er slagorðapólitíkin af hálfu þeirra sem verja þetta. Við verðum að leita réttar okkar til að reyna að tryggja að EES-samningurinn haldi. Þessi samningur hefur reynst okkur vel í rúm 30 ár. Við eigum að há baráttuna fyrir fullveldi þjóðarinnar af fullri einurð, hér eftir sem hingað til. Við sættum okkur ekki við svona svik. (Forseti hringir.) Það eru til önnur ríki til að halla sér að en ríkin innan ESB þótt öðru sé haldið fram í ódýrri slagorðapólitík hér í dag.