sýslumaður.
Forseti. Við höfum sagt, í tengslum við þetta frumvarp, að markmiðin séu í sjálfu sér sannarlega prýðileg um sparnað í rekstrinum sem þó reynist því miður í þessu tilviki ekki vera hagræðing í heildarríkisrekstrinum. Við bendum sömuleiðis á að áskilnaður um ýmis byggðasjónarmið sé því miður óljóst orðaður og engin trygging fyrir því í frumvarpinu að til lengri tíma haldi þau sjónarmið, og dæmin úr sögunni sanna það svo sem. Þarna eru sömuleiðis breytingartillögur um tilgreiningu starfsstöðva og það að sýslumaður sé löglærður, og vel má vera að slíkar breytingar myndu gera málið skömminni skárra. Að öðru leyti teljum við að frumvarpið, eins og það er núna, nái ekki þessum ágætu markmiðum, þótt við styðjum sannarlega markmiðin, og þess vegna leggjumst við gegn þessu. Ég tel að niðurstaðan hér verði sú að aukið vald verði sogað úr héraði, það verði aukin miðstýring og aukið vald færist til ráðherrans í þessu tilviki og þar með til Reykjavíkur.