157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[15:59]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða um risabyggðamál, og prinsippmál að mínu viti. Við erum að ræða það hér að taka vald sem hefur verið heima í héraði í verulega langan tíma og færa það yfir í einhvers konar miðstýringu. Ég hef verulegar áhyggjur af því, raunverulegar áhyggjur, virðulegur forseti, að þessi sameining muni ekkert verða frábrugðin flestum þeim sameiningum sem við úti á landi höfum orðið vitni að í gegnum árin. Og hvernig eru þær? Jú, þær byrja vel. Þær byrja með fögrum orðum og góðum gjörðum en enda yfirleitt á þann veg að það vatnar undan þessum stofnunum og ekki verður neitt úr neinu. Valdið og störfin færast af landsbyggðinni. Og það er það, virðulegur forseti, sem ég óttast að gerist nú. Ég mun því segja nei.