157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[16:00]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér er skortur á skýrum markmiðum. Það eru engin tímasett markmið, engar mælanlegar forsendur eða kostnaðargreiningar, óljóst hvernig hagræðingin á að nást. Þetta er ekki nóg fyrir svo stóra kerfisbreytingu. Ég hef sömuleiðis áhyggjur af þeim byggðaáhrifum sem geta hlotist af þessu. Það er óljóst hvar starfsstöðvar verða. Það er óljóst hvað verður áfram staðbundið og hvað verður ekki staðbundið. Það er hætta á ólíkri þjónustu á milli íbúanna og í þessu samhengi er alveg ljóst að við höfum verulegar áhyggjur af landsbyggðinni. Við í Framsókn styðjum álit 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar og leggjum til að málinu verði vísað til baka til ríkisstjórnarinnar. Ég kem til með að segja nei.