157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[16:02]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það hefur verið eitt af stóru verkefnunum síðasta áratuginn að koma fleiri verkefnum úr stjórnsýslunni út til landsmanna og dreifa þeim um landið, nýta það öfluga starfsfólk sem sýsluskrifstofurnar um landið hafa. Það hefur verið erfitt þar sem sýsluskrifstofurnar hafa verið misburðugar og verið svona eldveggir. Ég hef því verið mikill stuðningsmaður sameiningar sýslumanna til að liðka fyrir því að dreifa störfum um landið og styrkja stöðvarnar um landið og það eru mörg dæmi um að það hafi tekist. En alger forsenda þess að traust skapist, af því að traustið er ekki mikið, eins og komið hefur fram, varðandi það að störfin leki ekki öll til Reykjavíkur, er að lögbinda skrifstofurnar heima í héraði. Það er forsenda þess að hægt sé að styðja þetta frumvarp, að þær séu lögbundnar. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að landsbyggðarþingmenn stjórnarmeirihlutans standi ekki með okkur í því að festa skrifstofurnar samkvæmt lögum úti á landi.