sýslumaður.
Frú forseti. Þetta mál hefur verið allmikið rætt og ekki síst sá hluti málsins sem lýtur að menntunarkröfum og svo aftur hinn sem lýtur að landsbyggðinni. Þrátt fyrir allar þær umræður er enn í lokaútgáfu ekkert sem hönd á festir fyrir landsbyggðina, ekkert. Það eru viljayfirlýsingar, mætti jafnvel kalla það vonir og þrár og fögur fyrirheit, en það er ekkert sem hönd á festir. Ráðherra á hverjum tíma getur gjörbreytt því sem stendur í þessu frumvarpi nánast án þess að hafa nokkuð fyrir því. Þetta hefði að sjálfsögðu þurft að lögfesta. Hér er það valið að gera það ekki og ég óttast því að stefnan í þessu máli sé dulin, hún sé sú sama og í þeim fyrri sameiningum sem við höfum farið í gegnum síðustu ár og áratugi. Sogkraftur höfuðborgarsvæðisins gefur ekki tommu eftir.