sýslumaður.
Frú forseti. Við greiðum hér atkvæði um mál sem hefur fengið mikla umfjöllun í nefndinni, bæði á þessu þingi og því síðasta. Þetta er í grunninn hagræðing og þjónustubæting að miklu leyti til að tryggja betur það góða fólk sem starfar hjá sýslumannsembættunum. Ég hef fengið dæmi af því hjá einstaklingum sem starfa þarna inni, sem eru föst inni í þessum hólfum sem eru samkvæmt núverandi skipan, að það hefur tekið margar vikur að afgreiða hluti sem gætu tekið einhverja daga vegna þess að það þarf að þinglýsa hlutunum þrisvar og það þarf að gera hlutina oft og mörgum sinnum. Þetta er eitthvað sem við þurfum að bæta og erum að gera hér í dag.
Varðandi tortryggni og landsbyggð og höfuðborg þá skil ég vel þessa tortryggni. Það er sagan. En það eru ákveðnar fréttir í því að það er komin ný ríkisstjórn og það eru nýir flokkar sem nú stjórna. Þeir setja landsbyggðina á oddinn Hlátrasköll í þingsal. og ætla sér að passa upp á það að þessi störf verði áfram á landsbyggðinni. — Þetta var ekki brandari, svo að það sé sagt.