sýslumaður.
Virðulegur forseti. Þessi vinna hófst sem hagræðing. Í ljós hefur komið að það er ekki lengur markmið frumvarpsins. Síðan hefur verið talað um að auka þjónustuna. Á stóra sýslumannsdeginum sem haldinn var 24. október síðastliðinn kom í ljós að ánægja með þjónustu meðal almennings hefur aldrei mælst hærri hjá sýslumönnum, tæplega 70%, og traust rétt rúmlega 70%. Það eru háleit markmið að bæta það. Það er gott. Ríkisstjórnarmeirihlutinn og einstakir þingmenn koma hérna upp og fullyrða að þetta muni bæta allt á landsbyggðinni. Ríkisstjórnin í þremur verkefnum ætlar að fækka sýslumönnum um sjö, ætlar að leggja niður framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlitssvæða, sem eru níu úti á landi, og ætlar að taka skólameistarana niður, sem eru um 20. Þetta eru tæplega 40 störf sem eru best borguð úti á landi hjá ríkinu. Þessi störf ætlar ríkisstjórnin að leggja niður þannig að það er ekki skrýtið að það sé sérstakt verkefni í atvinnustefnunni að reyna að búa til mótvægisaðgerð við það sem ríkisstjórnin er að gera. Þetta snýst ekki um hagræðingu. Þetta snýst ekki um að byggja upp þjónustu úti á landi. (Forseti hringir.) Ég veit ekki til hvers þetta frumvarp er nema til þess að efla miðstýringu þjónustunnar.