157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[16:14]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég er talsmaður þess að það þurfi að fara vel með skattfé og hagræða í ríkisrekstrinum í hvívetna. Það er ábyrgðarhluti að meðhöndla skattfé borgaranna og fara vel með og við eigum að sameina þær stofnanir sem við getum. En ég tek undir þær áhyggjur sem hv. þingmenn, margir hverjir, hafa komið hér upp með, þar sem það liggur alveg ljóst fyrir að búið er að breyta þessu frumvarpi í þá átt að það er ekkert að ástæðulausu að margir hv. þingmenn hafa áhyggjur af því að þetta muni allt renna til Reykjavíkur. Hæstv. ráðherra talaði um að það eigi að tryggja störfin úti á landi. Hér liggur fyrir breytingartillaga frá hv. þm. Jóni Gunnarssyni þannig að ég hvet hv. þingheim til að styðja þá breytingartillögu sem liggur fyrir við frumvarpið þar sem við lögfestum að störfin fari út á land.