sýslumaður.
Virðulegi forseti. Ég sé að taflan er eins og jólatré, sem er kannski ágætt, jólin nálgast. Ég hefði viljað sjá meira grænt, vil reyndar yfirleitt sjá meira grænt. Gildistaka þessa frumvarps er 1. janúar 2027. Það ætlar ráðherra að gefa sér til að eyða allri óvissu. Óvissan verður sem sagt í 14 mánuði. Í stað þess að gera þetta þá væri skynsamlegra að vísa málinu til ríkisstjórnar og ráðherrann gæti komið með frumvarp, fullmótað með öllum svörum, reglugerð og öllum þeim leiðum sem til ættu að vera. Ég býst við að við í Framsókn verðum áfram á móti hugmyndafræðinni en það myndi hjálpa öllu þessu fólki sem á núna næstu 14 mánuði að vera í óvissu, í 14 mánuði. Skynsamlegast er því að skipta um skoðun og ýta á græna takkann. Það er alltaf best að vera á grænu.