sýslumaður.
Virðulegur forseti. Ráðherra kom inn á það áðan að það ætti að efla þjónustu um allt landið. Þetta er létt í vasa sem yfirlýsing frá þessum ráðherra vegna þess að ráðherrar koma og fara. Það er nú bara þannig. Við leggjum hér til, og mér sýnist að meiri hlutinn ætli að hafna því, að auk höfuðborgarsvæðisins verði lögbundnar skrifstofur opnar á Vesturlandi: Á Akranesi, í Borgarnesi, Búðardal, Snæfellsbæ og Stykkishólmi. Á Vestfjörðum: Hólmavík, Ísafirði og Patreksfirði. Á Norðurlandi vestra: Blönduósi og Sauðárkróki. Á Norðurlandi eystra: Akureyri, Húsavík, Siglufirði og Þórshöfn. Á Austurlandi: Eskifirði, Egilsstöðum, Seyðisfirði og Vopnafirði. Á Suðurlandi: Á Hvolsvelli, Höfn, Selfossi og í Vík. Í Vestmannaeyjum og í Keflavík á Suðurnesjum. Þessu ætlar meiri hlutinn að hafna, að lögbinda þessar stöðvar sem var einmitt sáttin í málinu við landsbyggðina.
Virðulegur forseti. Ég óska eftir því að málið fari aftur milli 2. og 3. umræðu til nefndar þannig að nefndin geti tekið þetta atriði alveg sérstaklega til umfjöllunar og endurskoðunar. Það má ekki vera þannig sem birtist okkur allt of oft, virðulegur forseti, að það er eins og þessi ríkisstjórn og landsbyggðin blandist álíka og olía og vatn.