sýslumaður.
Virðulegi forseti. Þetta snýst einmitt um að þjónusta alla landsmenn. Ég er viss um að mesta hagræðingin í þessu máli myndi nást með því að hafa sem flest störf sýslumanna unnin úti á landi. Þar er minni starfsmannavelta og þar er oft meiri skilvirkni og annað slíkt. Það hefur margsýnt sig. Traustið er ekki mikið og ef þetta á að vera áfram í byggðunum og það er svona mikill landsbyggðarmetnaður í hæstv. ríkisstjórn, þá skil ég ekki hvert vandamálið er við að lögfesta núverandi skrifstofur inni í lögunum. Ég skil ekki vandamálið. Því spyr ég hv. stjórnarþingmenn hvernig þeir ætli að mæta sínu fólki þegar verður farið að loka skrifstofum, (Gripið fram í: Þetta er atkvæðaskýring. )að það verði hægt að tryggja jafna þjónustu um allt land eins og hæstv. ráðherra sagði þó að skrifstofunum sé lokað. Ég hvet hv. þingmenn til þess að standa með þessari breytingartillögu. Ég kýs með henni af því að ég tel að hún muni ná fram mestu hagræðingunni í þessu máli.