brottfall laga um Heyrnar- og talmeinastöð.
Aftur þakka ég hv. þingmanni. Það er víða úti á landi til búnaður sem hefur ekki verið notaður um tíð og þar eru klefar til heyrnarmælinga. Mér er sagt að tækninni, eins og til heyrnarmælinga, fleyi óðum fram og hægt sé að þjálfa fólk sem er ekki sérmenntað á þessu sviði til að gera meira og þar hafa t.d. sjúkraliðar úti á landi verið nefndir. En jú, það er rétt: Þjónustan er að miklu leyti hjá sjálfstætt starfandi heyrnarfræðingum. Vandinn er að þeir eru allt of fáir og það þarf að bæta í menntun. Það er verið að hleypa þeirri menntun af stað hérlendis. Síðan er líka verið að skoða, af því að þarna eru líka talmein, að það þurfi að bæta í þar líka. Biðlistarnir eru á öllum stöðum og sérstaklega þegar kemur að börnum. Þar tel ég að til að ná árangri þurfi að vinna á öllum vígstöðvum og hvar sem við verður komið. En sérhæfð heyrnarþjónusta verður áfram annars stigs þjónusta hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Ég sé ekki að undan því verði komist því það eru mörg verkefni sem eru mjög sérhæfð.