endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og heyrði í framsögunni að hann var einnig að fara yfir árangurinn af kerfinu. Ef ég man rétt var gerð talsvert ítarleg úttekt árið 2021 og spurningin er hvort þær breytingar sem við gerðum á síðasta kjörtímabili, sem voru umtalsverðar, þegar við hækkuðum í 35% — hvort það liggi fyrir einhverjar nýjar rannsóknir eða mat á áhrifunum. Þá er ég ekki bara að tala um kostnaðinn sem til fellur heldur hvernig það hafi haft áhrif á efnahaginn. Við þekkjum það að hver króna komi margfalt inn en það þarf líka að meta þau fjölbreyttu störf sem hafa orðið til í þessum breytingum. Við vorum að sækjast eftir því að geta fengið stærri verkefni til að búa til stærri bakhjarla á Íslandi til að geta tekið á móti þeim — hvort það sé búið að leggja mat á það í ráðuneytinu.