157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

263. mál
[17:21]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Meðal þess sem var áskilið við samþykkt þess frumvarps var að skoðun færi fram á efnahagslegum þáttum þessa kerfis. Hér er ég með skýrslu frá fyrirtækinu Olsberg sem hefur reyndar gert úttekt á mjög mörgum kvikmyndaendurgreiðslukerfum mjög víða um heim. Þar er fullyrt að þetta hafi haft umtalsverð áhrif og kerfið kannski orðið það samkeppnishæfasta meðal nágrannaþjóða okkar að Írlandi undanskildu. Það er m.a. hægt að vísa í skýrslur sem hafa verið gerðar fyrir hin Norðurlöndin, þar er stundum bent á Ísland sem dæmi um auðskiljanlegra, einfaldara kerfi sem hefur örugglega orðið til þess að mikil framleiðsla hefur átt sér stað hér sem annars hefði ekki komið hingað.