endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Virðulegur forseti. Ég vona að ég komi nú ekki við kvikuna á hv. þingmanni, ég átti jú við hann en ég átti ekki síður við hv. þm. Sigurð Inga Jóhannsson sem ég veit að hefur unnið töluvert að því að koma þessum hlutum áfram, þannig að a.m.k. tveir hv. þingmenn hér þekkja þetta afskaplega vel. Já, það skiptir gríðarlega miklu máli að við styrkjum við barna- og unglingaefni. Ef ég skildi þingmanninn rétt þá laut spurningin að því hvort það kæmi til greina að vera með einhvers konar stuðning við að talsetja frá íslensku yfir á önnur tungumál eða öfugt. Það er ekki í þessu frumvarpi en hins vegar munum við koma fram með streymisveitufrumvarpið á næstu dögum og þar verður ívilnun fyrir streymisveiturnar ef þær talsetja og texta efni.