endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Nei, ég er að meina þegar um er að ræða verkefni sem eru alþjóðleg eins og er orðið algengt í dag, ég er t.d. bara nýbúinn að ljúka þátttöku í tveimur verkefnum sem eru alþjóðleg framleiðsla, framleidd í samstarfi við alþjóðlega aðila. Ég velti því fyrir mér að ef t.d. væri hér framleidd sjónvarpssería, barnaefni, t.d. á þýsku eins og eitthvað úr bókum Jóns Sveinssonar, Nonna, kæmi til álita að skilyrða að efnið yrði sýnt hér á landi á íslensku, það yrði sérstaklega talsett jafnvel þótt leikararnir væru þýskumælandi?