endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Virðulegur forseti. Þetta væri sannarlega miklu einfaldari hlutur ef við værum í Þýskalandi að ræða um sama mál undir öfugum formerkjum af því að þeir „döbba“ allt. Ég held að það sé bara hreinlega hvati inni í kerfinu til að gera þetta vegna þess að slík talsetning myndi njóta endurgreiðslu líka þannig að ég held að málið eigi að leysa sig að einhverju leyti sjálft. Í því ljósi langar mig að nefna að ég var á fundi menningarráðherra Evrópuríkja í Kaupmannahöfn fyrir tveimur vikum þar sem voru margir af helstu stjórnendum þessara stóru samveitna. Þar er um mjög merkilegt samstarf að ræða, þetta nýjasta heitir New8, sem er samstarf Norðurlandanna, Belgíu, Hollands, Þýskalands og ég veit að þeir eru að framleiða íslenska seríu hér. Ég held að í öllum þessum verkefnum verði leitast við að talsetja þetta meira eða minna á öll þessi tungumál, alla vega barna- og unglingaefnið.