endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta frumvarp sem er gríðarlega mikilvægt. Framsókn hefur stutt við þetta mál lengi og ég fagna því mjög að við séum að halda áfram á þeirri vegferð því þetta er atvinnumál, þetta er menningarmál og þetta er mál sem skiptir samfélagið okkar gríðarlega miklu á marga vegu. Eitt af því sem er mikilvægt til þess að þessi grein blómstri, vaxi og dafni er að nám í kvikmyndagerð haldi áfram að vaxa og dafna. Ég verð að segja að mér þótti leitt að sjá hvernig örlög Kvikmyndaskóla Íslands síðasta vor, ef ég man rétt, urðu. Það var gríðarleg frumkvöðlasaga sem lagði grunn að því að mikið af fólki hér á landi öðlaðist færni og gat tekið þátt í þessum verkefnum og þar með efldumst við sannarlega á þessu sviði. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort að tilfærslan sem hefur orðið á náminu sé að skila sér nægilega vel, (Forseti hringir.) hvort þörf sé á því að endurhugsa eða styrkja nám í kvikmyndagerð þessu tengdu að einhverju leyti sömuleiðis.
(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar ræðutímann sem er 1 mínúta.)