endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Virðulegur forseti. Aðeins varðandi fyrra atriðið sem hv. þingmaður kom inn á í andsvarinu. Ég er alveg sammála að það þurfa ekki allir að fara í háskólanám eða doktorsnám. Þess vegna hefur skipt máli að það hefur verið t.d. hagnýtt nám í kvikmyndagerð á Íslandi á fjórða hæfnissviði sem leiðir til mjög góðrar verklegrar hæfni. Þetta hefur verið eftirsótt starfsfólk, það stundar enn þá nám í öðrum skóla en ég veit ekki betur en það gangi bara afskaplega vel. Við þurfum að eiga gott samstarf við barna- og menntamálaráðuneytið þar vegna þess að það nám heyrir undir það ráðuneyti.
Varðandi Íslandsstofu, þá heyrir hún ekki undir mitt ráðuneyti en hún kemur auðvitað mjög sterkt að kynningu á Íslandi og íslenskum kvikmyndum m.a. en við erum líka með í okkar ráðuneyti fyrirbæri sem heitir Film in Iceland sem hefur sinnt þessu afskaplega vel.