157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

263. mál
[18:07]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Ég ætla í sjálfu sér ekki að beina neinni spurningu að þingmanninum heldur fannst mér bara skemmtilegt að heyra hvaðan þetta kom. Það er rétt að ef 80% eða meira af framleiðslunni er innan lands þá er hægt að telja fram 20% ef þau eru innan Evrópska efnahagssvæðisins, Færeyja eða Grænlands. Ég tel þetta reyndar, þó að ég hafi ekki upplýsingar um hversu miklu þetta hafi skipt, vera afskaplega mikilvægt vegna þess að við eigum að vinna þétt saman með þessum þjóðum. Það mun auðvitað verða uppgangur í kvikmyndagerð hjá þessum þjóðum eins og hjá okkur og bara mjög gaman að ég og hv. þingmaður vorum bæði viðstödd verðlaunaafhendingu Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í síðasta mánuði þar sem Færeyingar fengu einmitt Norðurlandaráðsverðlaunin í kvikmyndum. En ég þakka fyrir umræðuna. Mér sýnist að henni sé að ljúka og vona að málið fái góða meðferð í nefndinni.