dánaraðstoð.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir að vera svona góð í langhlaupi og gefast ekki upp. Ég er mjög fylgjandi þessu máli og tel að þetta sé mikið frelsismál og heillamál fyrir land og þjóð af mörgum ástæðum, persónulegum og öðrum. Fólk í fjölskyldunni minni hefur þurft að ganga í gegnum löng veikindi þannig að þetta er mál sem mig langar rosa mikið að verði að veruleika. Ég er líka ánægður með að sjá að það er fólk úr mörgum flokkum, málið er svolítið þvert á flokka og það væri ótrúlega gaman að sjá fleira fólk hérna úr fleiri flokkum.
En mig langaði líka aðeins að heyra frá hv. þingmanni: Hvað þurfum við að gera til að þetta verði að veruleika? Hvaða leið er vænlegust? Hvert eigum við að horfa? Eru það Benelux-löndin, Sviss, Bandaríkin? Eigum við að fara einhverja blandaða leið? Hvað getum við gert til þess að þetta mál fái brautargengi?
Svo velti ég því líka fyrir mér: Eru aðstæður á Íslandi einhvern veginn öðruvísi? Er þetta einhvern veginn erfiðara fyrir okkur vegna smæðar landsins og nálægðar við hvert annað? Hverjar eru hindranirnar hér á landi? Það væri ótrúlega gaman að fá að heyra aðeins meira frá hv. þingmanni um þetta.